Prismanámið hafið
Nýtt átta vikna námskeið í Prisma hóftst mánudaginn 1. febrúar.
Áttatíu umsóknir bárust í Prismanámið sem stendur til 31. mars en um 50 nemendur fengu inngöngu að þessu sinni.
Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem hentar þeim sem vilja skoða samtímann og skapa sér framtíð á gagnrýninn og skapandi hátt. Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu námið í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og til þessa hafa um það bil 90 nemendur útskrifast með diplóma í Prisma.
Að sögn Hrundar Gunnsteinsdóttur, forstöðukonu Prisma, er hópur umsækjenda sem fyrr fjölbreyttur, hvað aldur, reynslu og menntun varðar; ” Mér sýnist á hópi umsækjenda að nemendahópurinn verður ekki síður hafsjór reynslu og þekkingar en námið sjálft og fyrirlesarar.”
Nemendur í Prisma útskrifast með 16 eininga (ECTS) diplómagráðu. Námið stendur yfir samfleytt í 8 vikur og skal gera ráð fyrir viðverðu alla virka daga frá kl. 9.00-16.00 en kennt er á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík. Námslýsingu 2010 má sjá hér
Prisma var sett á laggirnar sem viðbrögð Listaháskólans og Háskólans á Bifröst við því ástandi sem skapaðist hér á landi í kjölfar bankahruns. Námið hefur vakið athygli hér heima og erlendis enda er um nýsköpun í menntun að ræða. Fjöldi hugmynda og spennandi verkefna hafa sprottið upp í náminu og verið hrint í framkvæmd.
Námslýsingu 2010 má sjá hér













