Curver Thoroddsen listamaður fjallar um eigin verk og flytur gjörning

Curver Thoroddsen listamaður fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 8. febrúar kl. 12.30.
Á undan fyrirlestrinum framkvæmir Curver hálftíma langan nektargjörning (sem byrjar klukkan 12:00).
Curver Thoroddsen er fæddur í Reykjavík 1976. Hann lauk B.A.-námi frá myndlistardeild LHÍ árið 2000 og MFA-námi í myndlist frá School of Visual Arts, í New York árið 2009. Samhliða myndlistarnámi lærði hann raftónlist, tónlistarsögu og hljóðupptökufræði m.a. í Tónveri Tónlistarskóla Kópavogs.
Curver hefur verið áberandi í íslensku myndlistarlífi í rúman áratug og var einn fjögurra listamanna sem sýndu í vitum víðsvegar um landið síðasta sumar sem hluti af Listahátíð í Reykjavík. Í Bjargtangavita við Látrabjarg setti hann upp pizzastaðinn SLICELAND - Vestustu Pizzur í Evrópu!
Markús Þór Andrésson, annar sýningarstjóra Brennið þið, Vitar! skrifar í sýningarskrá:
„Curver hefur með “Raunveruleikagjörningum” sínum og hjálp fjölmiðla endurspeglað eigin hversdagsheim. Dæmi um það eru eldri verk þar sem hann tók íbúðina sína í gegn, borðaði hamborgara upp á hvern dag og fór í megrun. Veruleikinn eins og hann blasir við flestum okkar fær nýja merkingu þegar hann er yfirfærður á vettvang myndlistar og fjölmiðla. Þá hefur Curver unnið markvisst með eigin ímynd og til marks um það er sú ákvörðun hans að afnema á fullorðinsárum skírnarnafn sitt og taka þess í stað upp heiti alþjóðlegs plastfyrirtækis - Curver. Hann hefur verið ötull á vettvangi tónlistar, ekki síst undanfarin ár með hljómsveitinni Ghostigital.“
Curver hlaut nýlega styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.











