Bráðum hata ég þig - sýningum lauk um helgina
Sýningum Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands á verkinu Bráðum hata ég þig, eftir Sigtrygg Magnason lauk föstudaginn 13. febrúar en uppselt var á allar sýningar.
Á bæ við Kolugljúfur í Víðidal hittast fjórar systur við jarðarför móður sinnar, sem beðið hafði dauðans í hálfan annan áratug. Halla hefur ekki haft samband í þrjú ár, Snæfríður hefur ekki talað við neinn jafn lengi. Steinunn þráir að vera snert og Anna vill komast burt. Halla kemur með gest, sem setur þögult sorglegt jafnvægið í uppnám. Kolugljúfur. Fallegur staður. Já. Fallegur staður.
Steinunn:
Á ákveðnu augnabliki breytist allt, allt hættir að vera eins og það var, hættir að vera eðlilegt, við höfum fellt grímuna.
Þegar ég hef fellt grímuna get ég ekki sett hana upp aftur, hún er ónýt, gagnslaus. Þegar ég hef staðið nakin fyrir framan þig þá er ég alltaf nakin í augum þínum, skiptir engu hversu mikið eða lítið ég klæði mig, hvernig ég klæði mig, alltaf nakin.
Alltaf nakin.
Og þegar þú hefur séð hvað ég er grimm þá geturðu aldrei gleymt því.
Þetta átti ekki að fara svona.
Bráðum hata ég þig er annað verkefni vetrarins en fyrsta sýning Nemendaleikhússins, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, var sýnd fyrir fullu húsi í haust en uppselt var á allar sýningar.
Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, búninga-og sviðsmyndahönnun er í höndum Axels Hallkels Jóhannessonar, Egill Ingibergsson sér um ljósahönnun og tæknistjórn og Brynja Björnsdóttir aðstoðar við leikmynd og tæknivinnu. Um hljóðmynd sér Högni Egilsson, tónsmíðanemi í tónlistardeild LHÍ.
Nemendaleikhúsið í vetur skipa:
Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson.
Sýningaáætlun:
| miðvikudagur | 20. janúar | Lokaæfing | kl.20:00 |
| fimmtudagur | 21. janúar | Frumsýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 23. janúar | 2. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 27. janúar | 3. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| fimmtudagur | 28. janúar | 4. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| föstudagur | 29. janúar | 5. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 30. janúar | 6. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 3. febrúar | 7. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| fimmtudagur | 4. febrúar | 8. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| föstudagur | 5. febrúar | 9. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 6. febrúar | 10. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 10. febrúar | 11. sýning | kl.20.00 - uppselt |
| fimmtudagur | 11. febrúar | 12. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| föstudagur | 12. febrúar | 13. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 13. febrúar | 14. sýning | kl.20:00 - uppselt |
ATH! Sýningin er bönnuð innan 16 ára.
Á þessari slóð má sjá leikdóm Silju Aðalsteinsdóttur í Tímariti Máls og menningar um sýninguna: http://tmm.forlagid.is/?p=2025#more-2025














