Stefan Bojsten frá Svíþjóð með masterklassa í tónlistardeild
Stefan Bojsten - Píanó masterklassi og fyrirlestur um impressíónisma dagana 11-12. febrúar í tónlistardeild Listaháskólans.
Prófessor Stefan Bojsten frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi heldur masterklassa í píanóleik dagana 11.-12. febrúar n.k. Píanónemendur tónlistardeildar Listaháskólans leika fyrir þennan frábæra píanóleikara og kennara en tímarnir eru opnir fyrir alla áhugasama.
Kennsla fer fram í Flyglasal LHÍ á Sölvhólsgötu, fimmtudaginn 11.febúar kl.10.00 - 17.00 og á föstudaginn 12.febrúar kl.10.00 -12.00.
Bojsten mun einnig halda fyrirlestur um túlkun píanóverka impressíóniska tímabils föstudaginn 12. feb. kl. 16.00 í Sölvhóli.












