Antoy Lachky dansari - gestur dansbrautar Listaháskólans
Antoy Lachky er gestur dansbrautar Listaháskólans vikuna 15. - 19 febrúar. Antony er best þekktur sem einn af fimm dönsurum Les Slovaks Dance Collective sem skotist hefur á miklum hraða upp á danshimininn með hnyttnum danssýningum sínum. Antony stundaði nám við P.A.R.T.S. í Brussel og hefur síðan dansað með mörgum mikilsvirtum danshöfundum eins og Akram Kahn og David Zambrano sem sótti dansbrautina heim fyrir teimur árum síðan. Antony mun einnig kenna við Íslenska dansflokkinn á meðan dvöl hans stendur á Íslandi.
Hér má sjá brot úr einu verka Les Slovaks Dance Collective: http://www.youtube.com/watch?v=kT4JaQaFYe0












