Háskóladagurinn - kynning á námsframboði allra háskóla landsins

Háskóladagurinn mynd 2010 F

HÁSKÓLADAGURINN - LAUGARDAGINN 20. FEBRÚAR KL. 11.00-16.00

Allir háskólar landsins kynntu námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur og í Háskóla Íslands en um 500 námsleiðir er að ræða. Einnig var kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíðþjóð í Norræna húsinu.

Laugardaginn 20. febrúar kynntu háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fór fram á tveimur stöðum í borginni. Í  Ráðhúsi Reykjavíkur var Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Íslands kynnti sitt nám í Háskólanum; á Háskólatorgi, í Gimli og Odda. Einnig var á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð  í Norræna húsinu.

Persónuleg ráðgjöf um mikilvæga ákvörðun

Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar tóku á móti gestum og miðluðu af reynslu sinni. Einnig var kynnt margskonar þjónustustarfsemi við nemendur. Um 3.000 gestir sóttu námskynningu háskólanna þennan dag. Margir gestanna eru að taka einhverja stærstu ákvörðun ævinnar, möguleikarnir eru margir og skiptir máli að vanda valið. Gott tækifæri gafst til þess á þessum sameiginlega kynningardegi þar sem kynntar voru yfir 500 mismunandi námsleiðir.

Sex háskólar kynntu námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur

Í Ráðhúsi Reykjavíkur kynntu sex  háskólar fjölbreytt námsframboð á grunn- og meistarastigi: Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Námsframboð þessara skóla er, eins og nöfn þeirra bera með sér, ákaflega fjölbreytt og spannar allt frá hrossarækt og myndlist yfir í hefðbundnari greinar háskólanáms á borð við viðskiptafræði og lögfræði. Kennarar, nemendur og námsráðgjafar voru á staðnum og veittu upplýsingar um allt nám sem þessir skólar bjóða. Nemendur Listaháskólans voru einnig með inntökumöppur til sýnis.

Háskóli Íslands á Háskólatorginu - Gimli og Odda

Á Háskólatorgi Háskóla Íslands, og í Gimli og Odda kynntu allar deildir Háskólans námsframboð sitt í grunnnámi og skipta námsleiðir hundruðum. Námsráðgjafar veittu leiðsögn og ráðgjöf og fjölmargar þjónustustofnanir kynntu starfsemi sína. Kynningin í Háskóla Íslands var öllum opin og gestum velkomið að skoða húsakynni skólans.

Kynning í Norræna Húsinu á 16 háskólum frá Danmörku og Svíþjóð

Kynnt var auk hefðbundins háskólanáms fjöldi annarra styttri námsleiða. Þar er um að ræða bæði iðn- og viðskiptanám auk margra annarra, eins og  t.d. hjúkrunar- og siglinganám. Ennfremur veitti fulltrúi frá Menntamálaráðuneytinu í Danmörku upplýsingar um það nám,  sem óskað var eftir.

haskoladagur

Sjá einnig á www.haskoladagurinn.is

18. febrúar, 2010