Klumpurinn kallar!
Klumpurinn kallar!
Þankahríð myndlistarnema um Listaháskólann verður dagana 23. febrúar - 29. febrúar 2010 í Listasafni Íslands.
Einnig verða Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt og hönnuður Laugarnesbyggingar og Páll Hjaltason arkitekt og hönnuður vinningstillögu um Listaháskóla á Laugavegi með kynningu á verkum sínum þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15.00
Opin Þankahríð verður miðvikudaginn 24. febrúar kl.13.00 -17.00 í efri sölum safnsins.
——————————————————————————————
Klumpurinn er afl myndlistarnema innan Listaháskóla Íslands sem veltir fyrir sér spurningum um ástand og tilgang Listaháskólans. Menningarstofnun? Menntastofnun, Samfélag? Þorp? Brotakennd heild? Laugarnes? Laugavegur? Vatnsmýri? Sölvhólsgata? Hafnafjarðarhraun? Skipholt? Grandi? Höfðatorg?Harpan?
Klumpurinn vill opna fyrir hugmyndir og hugleiðingar um málefnið, ræskja rödd sem áður hefur ekki heyrst. Klumpurinn spyr á fundinum hverskonar fyrirbæri er Listaháskóli Íslands? Hvað þarf hann til þrífast sem best í samfélaginu? Klumpurinn virkjar nemendur og starfsfólk skólans, listamenn, fagfólk og aðra sem áhuga hafa á skólanum, húsnæði hans og starfsemi.
Gestir safnsins fá nú tækifæri til að kynnast áhugaverðri hugmyndasögu sem endurspeglar drauma og væntingar um Listaháskólann. Jafnframt eru gestir hvattir til að leggja sitt af mörkum til að auðga umræðuna um þennan mikilvæga jarðveg íslenskrar myndlistar. Það má gera með ýmsu móti:
1) taka þátt í þankahríð miðvikudaginn 24. febrúar kl. 13.00
2) koma með efni
3) taka þátt í hugmyndavinnu á staðnum á vettvangi safnsins dagana 23. febrúar - 29. febrúar 2010
4) senda hópnum tölvupóst
Til sýnis í safninu verður afrakstur vettfangsferða Klumpsins um skólann, framlög gesta og fleiri áhugaverð ummerki.
Þáttakendur í þankahríð á miðvikudaginn vinsamlegast skrái sig á netfangið: lhithing@gmail.com
Listasafn Íslands er opið frá kl. 11.00 - 17.00.








