Múgavél opnar í Kubbnum - sýningarsal myndlistardeildar
Múgavél er yfirskrift sýningar myndlistarmannsins Gústavs Geirs Bollasonar sem opnuð verður í sýningarsal myndlistardeildar LHÍ, Kubbnum, að Laugarnesvegi 91, föstudaginn 26. febrúar kl. 17.00.
Í verkum sínum fæst Gústav Geir allt í senn við teikningu, ljósmyndun og kvikmyndun sem og söfnun ýmiskonar. Þáttum vinnu sinnar stefnir hann svo saman í innsetningum þar sem samspil verkanna í rýminu skipa ekki síður veigamikið hlutverk en einstakir hlutar heildarinnar. Við undirbúning sýningarinnar kaus listamaðurinn að efna til samstarfs við myndlistamennina Þórarinn Blöndal og Clementine Roy sem áður hafa sýnt og starfað með Gústav Geir og eru ásamt honum og fleiri myndlistamönnum stofnendur Verksmiðjunnar á Hjalteyri.
Sýningin Múgavél er hluti stærra verkefnis listamannsins þar sem fjallað er um Landslag og landslagsatvik. Líkt og múgavél sem hrúgar túnslættinum upp í skipulagða garða rótar Gústav Geir við og skipar upp á nýjan hátt menjum náttúru og menningar sem á vegi hans verða. Fyrstu tildrög verkefnisins voru ljósmyndir teknar á reiki úti í náttúrunni, stundum í óbyggðum en oftast nærri mannabyggðum eða á borgarmörkum. Verkefninu lýsir Gústav Geir sem ófullkominni víðsjá, þar sem eitt sjónarhorn felur í sér möguleika annars sjónarhorns, eða svo vitnað sé í texta listamannsins, þá er um að ræða: „nokkuð óskipulega sýn þar sem spurst er fyrir um framtíð landslags og til verður í raun hálf fáránlegt samtal náttúruafla og byggingarafla, þar sem spilað er á stærðarhlutföllin og hlutverkunum hefur jafnvel verið snúið við í samanburðinum borg/náttúra.“
Síðla árs 2004 varpaði Gústav Geir tveimur hátalaraboxum út á sjó og leitaði þá uppi endrum og sinnum á trillu sinni. Vorið 2008 tók hann kassana upp og til hafði orðið verkið Svartir kassar, eitt burðarverka sýningarinnar,sem auk fleirri verka listamannsins er nú spilað saman með verkum þeirra Clementine Roy og Þórarins Blöndal í Kubbnum.
Gústav Geir lauk námi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands árið 1989. Hann dvaldi einn vetur við nám í Búdapest og lauk síðan framhaldsnámi í myndlist frá École d´art de Cergy í Frakklandi árið 1995. Hann býr og starfar að myndlist sinni á Hjalteyri við Arnarfjörð.
Mánudaginn 1. mars kl. 12.30 heldur Gústav Geir hádegisfyrirlestur við Opna Listaháskóla myndlistardeildar í Laugarnesi. Þar mun hann fjalla um verk sín auk þess sem hann og Þórarinn Blöndal munu kynna starfsemi Verksmiðjunnar á Hjalteyri.
Sýning Gúsavs Geirs í Kubbnum stendur yfir til 19. mars. Hún er opin alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00, eða eftir samkomulagi.












