Klumpurinn kallar!
Þankahríð um Listaháskóla Íslands, önnur umferð, föstudaginn 26. febrúar, kl. 14.00 í efri sölum Listasasafns Íslands.
Yfirferð, sunnudaginn 28. febrúar, kl. 14.00 í efri sölum Listasafns Íslands.
Lokahóf, sunnudaginn 28. febrúar, kl. 15.00 í efri sölum Listasafns Íslands.
Klumpurinn er stíflulosandi afl innan Listaháskóla Íslands sem veltir fyrir sér spurningum um ástand og tilgang Listaháskólans. Menningarstofnun? Menntastofnun? Samfélag? Þorp? Brotakennd heild? Laugarnes? Laugavegur? Vatnsmýri? Sölvhólsgata? Hafnafjarðarhraun? Skipholt? Grandi? Höfðatorg? Harpan? Klumpurinn vill opna fyrir hugmyndir og hugleiðingar um málefnið, ræskja rödd sem áður hefur ekki heyrst. Klumpurinn spyr hverskonar fyrirbæri er Listháskólinn? Hvað þarf hann til að þrífast sem best í samfélaginu?
Klumpurinn stóð að velheppnaðri Þankahríð (Brainstorming) á miðvikudaginn síðastliðinn. Klumpurinn telur því upplagt að efna til annarrar umferðar að Þankahríð föstudaginn 26. febrúar, þar sem hann vonast eftir þátttöku sem flestra. Klumpurinn komst að því að Þankahríð er afar áhrífarík leið til að hlusta, afla og miðla ólíkum skoðunum um skólann.
Klumpurinn mun fara yfir niðurstöður Þankahríðar á sunnudaginn 28. febrúar kl. 14.00. Þar mun meðal annars Hjálmar H.Ragnarsson, rektor Listaháskólans mæta ásamt fleiri aðstandendum skólans. Klumpurinn bíður svo í lokahóf sama dag kl. 15.00.
Viðburðurinn tengist námskeiðinu Andóf - Samfélag í mótun sem Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarkona stendur fyrir.












