Gústav Geir Bollason með sýningu og fyrirlestur

Gustav Geir Opni 2010

Hádegisfyrirlestur Gústavs Geirs Bollasonar við Opna Listaháskólann í tilefni sýningarinnar Múgavél í Kubbnum, sýningarsal myndlistardeildar LHÍ.

Mánudaginn 1. mars kl. 12.30 heldur Gústav Geir Bollason hádegisfyrirlestur við Opna Listaháskóla myndlistardeildar í Laugarnesi. Sýning Gústavs Geirs, Múgavél, opnar í sýningarsal Myndlistardeildar LHÍ, Kubbnum, föstudaginn 26. febrúar kl 17.00. Til sýningarinnar bauð hann með sér myndlistarmönnunum Clementine Roy og Þórarni Blöndal.
Auk þess að kynna eigin verk á fyrirlestrinum munu þeir Gústav Geir og Þórarinn gera grein fyrir sameiginlegu verkefni sínu og annarra aðstandenda Verksmiðjunnar á Hjalteyri, mikilsvirks vettvangs myndlistar, sem og annarra listviðburða norðan heiða, en Verksmiðjan var stofnuð fyrir tveimur árum.
Sýningin Múgavél í Kubbnum í Laugarnesi stendur yfir til 19. mars og er opin á skólatíma eða alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00.

Fimmtudaginn 4. mars kl. 12.30 verður boðið upp á hádegisleiðsögn listamannins um sýninguna Múgavél.

26. febrúar, 2010