Þýski danshöfundurinn Thomas Lehmen - gestakennari dansbrautar LHÍ
Þýski danshöfundurinn Thomas Lehmen er gestakennari dansbrautar Listaháskólans dagana 22. febrúar - 5. mars á danssmíðanámskeiði. Thomas vinnur dansverk sín á mörkum dans, heimspeki og leikhúss. Með þróun á aðferðinni “Schreibstück” braut hann upp viðteknar hugmyndir um höfundinn og eignarhald á hugmynd með því að endurskilgreina mörkin ámilli danssmiðsins, höfundarins og dansaranns. Ýmsir þekktir danhöfundar hafa unnið með aðferðina m.a. Jonathan Burrows, Martin Nachbar, Christine de Smedt og Hooman Sharifi.
Verk Thomasar eiga það sameiginlegt að byggja á spurningunni um hvernig sigrast megi á eða brjóta upp lögmál sviðsins þ.e. hvernig megi opna upp sviðstilveruna þannig að lífið, listin og ígrundun tvinnist saman í eina tilvistarspurningu. Í maí næstkomandi frumsýnir Thomas verkið “Schrottplatz” í PACT Zollverein Essen. Þar talar Thomas við hluti og reynir að veita þeim innsýn í okkar heim. Hann útskýrir kapal fyrir tómati, listaverk fyrir bolta, dagblað fyrir sardínudollu á sama tima og hann útskýrir okkur fólkið fyrir þeim. Því meira sem Thomas reynir að útskýra hin ýmsu fyrirbæri því minni verður trúverðugleiki þeirra.








