Múgavél opnar í Kubbnum - sýningarsal myndlistardeildar

gustavgeir2

Múgavél er yfirskrift sýningar myndlistarmannsins Gústavs Geirs Bollasonar sem opnuð verður í sýningarsal myndlistardeildar LHÍ,  Kubbnum, að Laugarnesvegi 91, föstudaginn 26. febrúar kl. 17.00.

Í verkum sínum fæst Gústav Geir allt í senn við teikningu, ljósmyndun og kvikmyndun sem og söfnun ýmiskonar. Þáttum vinnu sinnar stefnir hann svo saman í innsetningum þar sem samspil verkanna í rýminu skipa ekki síður veigamikið hlutverk en einstakir hlutar heildarinnar. Við undirbúning sýningarinnar kaus listamaðurinn að efna til samstarfs við myndlistamennina Þórarinn Blöndal og Clementine Roy sem áður hafa sýnt og starfað með Gústav Geir og eru ásamt honum og fleiri myndlistamönnum stofnendur Verksmiðjunnar á Hjalteyri.

Sýningin Múgavél er hluti stærra verkefnis listamannsins þar sem fjallað er um Landslag og landslagsatvik. Líkt og múgavél sem hrúgar túnslættinum upp í skipulagða garða rótar Gústav Geir við og skipar upp á nýjan hátt menjum náttúru og menningar sem á vegi hans verða. Fyrstu tildrög verkefnisins voru ljósmyndir teknar á reiki úti í náttúrunni, stundum í óbyggðum en oftast nærri mannabyggðum eða á borgarmörkum. Verkefninu lýsir Gústav Geir sem ófullkominni víðsjá, þar sem eitt sjónarhorn felur í sér möguleika annars sjónarhorns, eða svo vitnað sé í texta listamannsins, þá er um að ræða: „nokkuð óskipulega sýn þar sem spurst er fyrir um framtíð landslags og til verður í raun hálf fáránlegt samtal náttúruafla og byggingarafla, þar sem spilað er á stærðarhlutföllin og hlutverkunum hefur jafnvel verið snúið við í samanburðinum borg/náttúra.“

Síðla árs 2004 varpaði Gústav Geir tveimur hátalaraboxum út á sjó og leitaði þá uppi endrum og sinnum á trillu sinni. Vorið 2008 tók hann kassana upp og til hafði orðið verkið Svartir kassar, eitt burðarverka sýningarinnar,sem  auk fleirri verka listamannsins er nú spilað saman með verkum þeirra Clementine Roy og Þórarins Blöndal í Kubbnum.

Gústav Geir lauk námi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands árið 1989. Hann dvaldi einn vetur við nám í Búdapest og lauk síðan framhaldsnámi í myndlist  frá École d´art de Cergy í Frakklandi árið 1995. Hann býr og starfar að myndlist sinni á Hjalteyri við Arnarfjörð.

Mánudaginn 1. mars kl. 12.30 heldur Gústav Geir hádegisfyrirlestur við Opna Listaháskóla myndlistardeildar í Laugarnesi. Þar mun hann fjalla um verk sín auk þess sem hann og Þórarinn Blöndal munu kynna starfsemi Verksmiðjunnar á Hjalteyri.

Sýning Gúsavs Geirs í Kubbnum stendur yfir til 19. mars. Hún er opin alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00, eða eftir samkomulagi.

Sigga Björg myndlistarmaður með fyrirlestur

Opni Sigg Björg

Sigga Björg Sigurðardóttir kynnir eigin verk í hádegisfyrirlestri Opna listaháskólans í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Ísland, Laugarnesvegi 91 í Reykjavík,
stofu 024, mánudaginn 22. febrúar kl.12.30.

Sigga Björg Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 1977. Hún útskrifaðist með BA-gráðu frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001 og með Mastersgráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Hún bjó og starfaði í Glasgow frá árinu 2002 til lok ársins 2008 en er nú búsett á
Íslandi.

Verk Siggu Bjargar hafa verið sýnd afar víða, að mestu erlendis. Verk hennar eru að finna í opinberum söfnum og einkalistasöfnum víðs vegar um heim.

Í verkum Siggu Bjargar er teikningin aðal miðillinn. Teikningar á pappír, veggi og teiknimyndir.

Í fyrirlestrinum mun Sigga segja stuttlega frá verkum sínum og vinnu en aðallega mun hún sýna myndir af teikningum, innsetningum og brot úr teiknimyndum.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Katharina Klara Jung skrifaði um verk Siggu Bjargar: “There is something human about them, somehow. At times there’s a head missing or instead they have huge black muzzles, hardly ever do they have eyes but still they always seem to feel. What exactly is hard to determine, but one thing is sure: They feel something, something human, pain, mourning, affection, despair, confusion.”

“It’s the everyday life, the usual, always a little surprising and always a little unnerving everyday life that the creatures have to cope with, sometimes funny, sometimes malicious, sometimes in entire resignation but always strikingly outspoken and without the façade of political correctness. They are snap-shots of a weird blend of emotions that goes beyond verbal description.”

Háskóladagurinn - kynning á námsframboði allra háskóla landsins

Háskóladagurinn mynd 2010 F

HÁSKÓLADAGURINN - LAUGARDAGINN 20. FEBRÚAR KL. 11.00-16.00

Allir háskólar landsins kynntu námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur og í Háskóla Íslands en um 500 námsleiðir er að ræða. Einnig var kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíðþjóð í Norræna húsinu.

Laugardaginn 20. febrúar kynntu háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fór fram á tveimur stöðum í borginni. Í  Ráðhúsi Reykjavíkur var Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Íslands kynnti sitt nám í Háskólanum; á Háskólatorgi, í Gimli og Odda. Einnig var á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð  í Norræna húsinu.

Persónuleg ráðgjöf um mikilvæga ákvörðun

Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar tóku á móti gestum og miðluðu af reynslu sinni. Einnig var kynnt margskonar þjónustustarfsemi við nemendur. Um 3.000 gestir sóttu námskynningu háskólanna þennan dag. Margir gestanna eru að taka einhverja stærstu ákvörðun ævinnar, möguleikarnir eru margir og skiptir máli að vanda valið. Gott tækifæri gafst til þess á þessum sameiginlega kynningardegi þar sem kynntar voru yfir 500 mismunandi námsleiðir.

Sex háskólar kynntu námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur

Í Ráðhúsi Reykjavíkur kynntu sex  háskólar fjölbreytt námsframboð á grunn- og meistarastigi: Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Námsframboð þessara skóla er, eins og nöfn þeirra bera með sér, ákaflega fjölbreytt og spannar allt frá hrossarækt og myndlist yfir í hefðbundnari greinar háskólanáms á borð við viðskiptafræði og lögfræði. Kennarar, nemendur og námsráðgjafar voru á staðnum og veittu upplýsingar um allt nám sem þessir skólar bjóða. Nemendur Listaháskólans voru einnig með inntökumöppur til sýnis.

Háskóli Íslands á Háskólatorginu - Gimli og Odda

Á Háskólatorgi Háskóla Íslands, og í Gimli og Odda kynntu allar deildir Háskólans námsframboð sitt í grunnnámi og skipta námsleiðir hundruðum. Námsráðgjafar veittu leiðsögn og ráðgjöf og fjölmargar þjónustustofnanir kynntu starfsemi sína. Kynningin í Háskóla Íslands var öllum opin og gestum velkomið að skoða húsakynni skólans.

Kynning í Norræna Húsinu á 16 háskólum frá Danmörku og Svíþjóð

Kynnt var auk hefðbundins háskólanáms fjöldi annarra styttri námsleiða. Þar er um að ræða bæði iðn- og viðskiptanám auk margra annarra, eins og  t.d. hjúkrunar- og siglinganám. Ennfremur veitti fulltrúi frá Menntamálaráðuneytinu í Danmörku upplýsingar um það nám,  sem óskað var eftir.

haskoladagur

Sjá einnig á www.haskoladagurinn.is

Antoy Lachky dansari - gestur dansbrautar Listaháskólans

Dansbraut-150210

Antoy Lachky er gestur dansbrautar Listaháskólans vikuna 15. - 19 febrúar. Antony er best þekktur sem einn af fimm dönsurum Les Slovaks Dance Collective sem skotist hefur á miklum hraða upp á danshimininn með hnyttnum danssýningum sínum. Antony stundaði nám við P.A.R.T.S. í Brussel og hefur síðan dansað með mörgum mikilsvirtum danshöfundum eins og Akram Kahn og David Zambrano sem sótti dansbrautina heim fyrir teimur árum síðan.  Antony mun einnig kenna við Íslenska dansflokkinn á meðan dvöl hans stendur á Íslandi.

Hér má sjá brot úr einu verka Les Slovaks Dance Collective:  http://www.youtube.com/watch?v=kT4JaQaFYe0

Vigdis Haugtroe listakona frá Noregi heldur fyrirlestur

opni-vh_husly_ii_haugesund

Frá OPNA LISTAHÁSKÓLANUM
HÁDEGISFYRIRLESTUR mánudaginn 15. febrúar kl. 12.30


Vigdis Haugtroe listakona frá Noregi, kynnir verk  sín og Franciscus de Gier í hádegisfyrirlestri Opna Listaháskólans í húsnæði myndlistardeildar LHÍ, Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 15. febrúar kl. 12:30.

With a background in both theatre and visual art, Vigdis Haugtrø studied at the National academy of fine arts in Norway/Oslo and graduated in 2002. Her main focus has been installations, investigating how to redraw the spectator from her or his primarily position; looking at art, to participate in art, and through this experience of physical activity, reach different levels of stored memory, that is captured in the body, rather than the mind and activated through this often playful activities.

The widest extend of this artistic approach is so far, a habitable house made of euro pallets and scrap wood, available as a Artist Residence in the test-ecological city part Svartlamon in Trondheim. The house gives shelter and opens for another form of living trough the daily routine, uniting new techno-logy and old traditions in a balanced agreement to meet the standards for sustainable building and living. The project that has taken two years to develop, and complete is a collaboration with artist Johannes Franciscus de Gier (NL) 2007-2009 www.husly.net  The two artists won recognition for Husly at Bauhaus Foundation in Dessau 2008. The colla-boration with de Gier started in 2006 and has developed in various projects. Ecology, trash art and found objects are the origin for the relational projects, often developed as actions in common space, over a brief period of time.  The artists have sometimes lived in the workspace, and on street level established a dialog with the audience, rising questions about living, surviving and communicating.

At the artist talk Vigdis will present their collaboration the last three years.

www.haugtroe.com   www.husly.net

Vigdis Haugtroe dvelur nú í vinnustofu SÍM.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn.