Sýningin “Í barnastærðum” sem er samstarfsverkefni Hafnarborgar, Listháskóla Íslands, Hönnunarsafns Íslands og fleiri aðila opnaði laugardaginn 13. mars og var á dagskrá HönnunarMars 18-21. mars. Á sýningunni verður bæði íslensk og erlend hönnun en hún er styrkt af Mennta - og menningarmálaráðuneytinu.
Nemendur í vöruhönnun við Listaháskólann sýna kassabíla sem þau hönnuðu og smíðuðu á námskeiði í skólanum í tengslum við sýninguna en hönnunin er innblásin af hugmyndum frægra hönnuða. Leiðbeinandi þeirra var Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður sem einnig er sýningarstjóri sýningarinnar.
Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti þess sem unnið hefur verið hér á landi eru húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn og fæst hefur komist í almenna framleiðslu. Eldri hluti sýningargripanna hefur ekki verið mikið sýndur opinberlega og er sýningin því einstakt tækifæri til að kynnast lítt þekktum verkum annars þekktra höfunda. Verk yngri hönnuða hafa meira farið í almenna framleiðslu og eru nokkur dæmi um slík verk á sýningunni. Einnig eru á sýningunni fjöldi hluta yngri hönnuða sem bera merki þeim krafti sem einkennt hefur íslenska hönnun á undanförum árum. Flestir erlendu hlutirnir eru eftir vel þekkta hönnuðir og hafa ýmist haft áhrif á íslenska hönnun eða sækja í svipaðar hugmyndir og setja þannig íslensku hlutina í alþjóðlegt samhengi.
Í tilefni sýningarinnar hafa þrír ungir hönnuðir unnið nýsköpunarverkefni og tekið að sér að hanna fyrir börn. Þau höfðu frjálsar hendur um það hvernig þau tókust á við verkefnið og er árangur vinnu þeirra á sýningunni auk þess sem sköpunarferlinu eru gerð skil. Nýsköpunarverkefnin eru unnin í samstarfi við Hönnunarsjóðinn Auroru.
Skemmtilegt innlegg í sýninguna er vinna nemenda í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands en þau hönnuðu og smíðuðu kassabíla innblásna af hugmyndum frægra hönnuða. Kassabílarnir verða sýndir en ungir sýningargestir fá einnig að kanna notagildi þeirra og aka um í safninu.
Þannig skiptist sýningin annarsvegar í hefðbundið sýningarrými þar sem hlutir eru sýndir og þeim gerð skil með textum og upplýsingum um höfunda og hinsvegar rými þar sem gestir á öllum aldri geta prófað sýningargripi og kannað þannig notagildi þeirra og hugmyndirnar að baki þeim. Einnig verður hluti safnsins lagður undir smiðju þar sem gestir geta notað innblástur sýningarinnar í eigin sköpun.
Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir hönnuður. Sýningin er unnin í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands sem leggur til marga sýningargripi og faglegan stuðning. Sýningin nýtur stuðning Safnasjóðs, menntamálaráðuneytis og verslunarinnar Epal.
Viðamikil dagskrá verður í boði fyrir gesti safnsins á öllum aldri en einnig er boðið upp á fræðslu fyrir skólahópa sem bæði geta tekið þátt í leiðsögnum og listsmiðjum. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna auk þess sem sýningarstjóri og hönnuðir ræða um verk sín við gesti. Sýningin er hluti af Hönnunarmars 18. - 21. mars og Barnamenningarhátíð 19. - 25. apríl.
Sýnining stendur til 2.maí.


















