Vöruhönnuðir úr LHÍ tilnefndir til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.

bjorgibu

Fjórir nýútskrifaðir nemendur úr vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands hafa verið tilnefndir til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Þetta eru þær Edda Jóna Gylfadóttir, Guðrún Björk Jónsdóttir, Helga Björg Jónasardóttir og Guðrún Hjörleifsdóttir. Þær eru tilnefndar fyrir verkefnið „Arctic snakk” sem er annars vegar sölsnakk og hinsvegar kartöfluflögur, marineraðar í sjó og bakaðar. Verkefnið sprettur upp úr verkefninu „Stefnumót við bændur” sem þær tóku þátt í meðan á námi stóð. Eftir að þær luku námi við skólann hafa þessir vöruhönnuðir þróað þessar  hugmyndir áfram.  Sölsnakkið er unnið í samvinnu við Höllu Steinólfsdóttur, bónda í Ytri-Fagradal á Skarðströnd við Breiðafjörð, og kartöfluflögurnar í samvinnu við Hjalta Egilsson, bónda á Seljavöllum í Nesjum við Höfn í Hornafirði.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt er af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Nýsköpunarverðlaunin 2010 verða veitt 2. mars nk. og eru fimm verkefni tilnefnd.

2. mars, 2010