Metaðsókn í leikaranám leiklistar- og dansdeildar LHÍ
Umsóknarfrestur um leikaranám og nám í fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands rann út í 1.mars s.l. Alls bárust 165 umsóknir í leikaranámið, er það 23% aukning frá fyrra ári og metaðsókn frá stofnun deildarinnar. 30 umsóknir bárust í fræði og framkvæmd og er það fjölgun frá því er síðast var tekið við umsóknum í námið. Umsóknarfrestur í samtímadansnám við leiklistardeild rennur út 15. mars. Að inntökuprófum loknum er allt að tíu nemendum boðin skólavist á hverri braut.












