Myndlistarkonan Amelie von Wulffen með fyrirlestur

opni-2010-wulffen5e6627181c

Myndlistarkona Amelie von Wulffen (f. 1966) fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri OPNA LISTAHÁSKÓLANS í húsnæði myndlistardeildar Listaháskólans að Laugarnesvegi 91, mánudaginn 8.mars kl. 12.30.
Amelie von Wulffen stundaði nám við Listaakademíuna í Munchen og er nú prófessor við Myndlistarakademíuna í Vín. Hún er stödd hér á landi í tengslum við sýninguna ANGURVÆRÐ Í MINNI sem opnar á Listasafni Íslands 11. mars n.k. Á sýningunni verða verk eftir fjóra listamenn sem fjalla um ásælni minninganna. Listamennirnir eru auk hennar Birgir Snæbjörn Birgisson, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson.

Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn.

4. mars, 2010