Afturgöngur og afskipti af sannleikanum tilnefnd til viðurkenninga

aftugongur_kapa.ok

Afturgöngur og afskipti af sannleikanum tilnefnd til menningarverðlauna DV og viðurkenningar Hagþenkis

Bók, Sigrúnar Sigurðardóttur, Afturgöngur og afskipti af sannleikanum, hefur verið tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis 2009 og menningarverðlauna DV í flokknum fræði. Þjóðminjasafn gefur bókina út og Listaháskóli Íslands styrkir útgáfuna.

Í bókinni Afturgöngur og afskipti af sannleikanum eftir Sigrúnu Sigurðardóttur er fjallað um ljósmyndir sem menningarlegt
greiningartæki og skoðað hvernig ljósmyndir móta sjálfsmyndeinstaklinga, fjölskyldualbúm þjóða og viðhorf til dauðans. Ljósmyndir eftir íslenska samtímaljósmyndara eru settar í alþjóðlegt samhengi og fjallað um óljós mörk milli heimildaljósmyndunar og skapandi ljósmyndunar.

Texti bókarinnar er bæði persónulegur og aðgengilegur en um leið er um að ræða fræðilega greiningu sem byggir á helstu kenningum í ljósmyndafræði samtímans.

Sigrún Sigurðardóttir er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og cand.mag.-próf í menningarfræði frá Kaupmannahafnarháskóla með ljósmyndafræði sem sérsvið. Hún hefur verið fagstjóri í hönnunarfræðum við Listaháskóla Íslands frá 2006 og aðjúnkt í Hönnunar- og arkitektúrdeild frá 2008. Sigrún vinnur nú að ritstörfum.

Sjá nánar: http://hagthenkir.is/ og
http://www.dv.is/brennidepill/2010/3/5/tilnefningar-til-menningarverdlauna-dv/

8. mars, 2010