Hand Traffic In The Box - sýning myndlistarnema á Seyðisfirði

myndlist-seydisfjordur-2010myndlist-seydisfjordur-2010-3

Hand Traffic In The Box

Claus Haxholm Jensen, Katrin Caspar, Logi Höskuldsson, Ragnhildur
Jóhannsdóttir, Selma Hreggviðsdóttir, Sigríður Tulinius, Solveig
Thoroddsen og Þórarinn Ingi Jónsson
06.03.10 - 02.05.10
Aðalsalur

Einu sinni á ári fá útvaldir listaskólanemar tækifæri til að baða sig í gestrisni Seyðisfjarðar og drekka af köldum spena hans. Í ár voru það átta ólíkir listamenn, innlendir og erlendir, sem börðust við að finna lausnir á vandamálum sem eru ekki til. Lausnirnar verða framreiddar fyrir svanga listunnendur, kaldar og beiskar, í listamiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði, þann 6. mars.
Þegar öll kurl eru komin til grafar er Hand Traffic In The Box sýning sem ekki verður lýst með orðum heldur brögðuð með dauðlegum
augum.

Leiðbeinendur eru Björn Roth og Kristján Steingrímur Jónsson.

Sýningin er opin miðvikudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00 - 17.00 og föstudaga til sunnudaga frá kl. 12.00 - 22.00
———————————

Once a year selected art school students get the chance to bathe in the hospitality of Seyðisfjordur and drink from it’s cold tit. This
year eight artists, foreign and domestic, fought to find solutions to non-existing problems. The solutions will be served to hungry art lovers, cold and bitter, in the Skaftfell art centre the 6th of March. When all the bones have returned to the grave, Hand Traffic In A Box is an exhibition which
cannot be described with words but only tasted with mortal eyes.

Claus Haxholm Jensen, Katrin Caspar, Logi Höskuldsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Selma Hreggviðsdóttir, Sigríður Tulinius, Solveig
Thoroddsen and Þórarinn Ingi Jónsson exhibit their works under the guidance of the seminars conductors and curators Björn Roth and
Kristján Steingrímur Jónsson.

The exhibition in on until 2nd May and it is open Wednesday to Thursday from 13.00 - 17.00 and Friday to Sunday from 12.00 - 22.00.

Skaftfell Center for Visual Art | Austurvegur 42 | 710 Seyðisfjörður | Iceland | tel. +354 472 1632 | skaftfell.is

8. mars, 2010