Klumpurinn boðar til Þankahríðar

thankahrid_mynd

Klumpurinn boðar til Þankahríðar fimmtudaginn 11. mars kl. 13.00 í myndlistardeild Listaháskólans,
Laugarnesvegi 91.

Þankahríð er opin umræðuvettvangur um Listaháskóla Íslands. Klumpurinn hefur komist að því að Þankahríð er afar áhrifarík leið til að hlusta, afla og miðla ólíkum sjónarmiðum. Klumpurinn spyr hvert sé ástand og tilgangur Listaháskólans í dag. Hvað þarf hann til að þrífast sem best í samfélaginu? Hvert er vægi listmenntunar fyrir samfélagið?

Klumpurinn er stíflulosandi afl stúdenta í Listaháskólanum.

Sjá nánar:

Facebook:http://www.facebook.com/home.php?#!/pages/Pulsugerdarhlunkur/349850600449?ref=ts

Blogg: http://klumpur.tumblr.com/

8. mars, 2010