Gjörningar og vídeólist á Nýlistasafninu
Sex vikur af Helvíti með Erling - Gjörningar og vídeólist á Nýlistasafninu.
Laugardaginn 13. mars frá klukkan 17.00 - kl.19.00 munu nemendur myndlistardeildar Listaháskóla Íslands fremja gjörninga og sýna vídeó í nýjum húsakynnum Nýlistasafnsins að Skúlagötu 28.
Tólf nemendur skólans eru að klára sex vikna áfanga í gjörningum og vídeóvinnslu og er viðburðurinn á Nýlistasafninu úrvinnsla þeirra úr áfanganum. Viðburðurinn verður aðeins þennan eina dag og ber heitið “Sex vikur af Helvíti með Erling - Six weeks of Hell with Erling”.
Nemendurnir ásamt kennara sínum Erling T.V. Klingenberg fóru í nokkra daga vinnuferð til Flateyrar í áfanganum, ásamt leiðangurstjóranum Bjarna “Massa” Sigurbjörnssyni og unnu þar sameiginlegt vídeó sem verður m.a. sýnt á Nýlistasafninu.
Nemendurnir koma frá Íslandi, Þýskalandi og Hollandi en þau eru: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Dagrún Aðalsteinsdóttir, Gintarė Mačiulskytė, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Jóhanna María Einarsdóttir, Jón Pálmar Sigurðsson, Kristína Aðalsteinsdóttir, Lilý Erla Adamsdóttir, Oleg Kauz, Piet Langeveld og Susanne Göldner.












