Caput heldur tónleika í Sölvhóli
Caput-hópurinn heldur tónleika í Sölvhóli, sunnudaginn 14. mars, kl. 17.00.
Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Listaháskólann. Flutt verða verk eftir kóreönsk, japönsk og íslensk tónskáld ásamt nýjum verkum eftir tvo nemendur tónsmíðadeildar Listaháskólans, þá Junichi Matsumoto og Þorbjörn B. Kolbrúnarson.
EFNISSKRÁ:
Malika Kishino: Himmelsleiter (2006)
Sungji Hong: Luminous Flux (2008)
Hafdís Bjarnadóttir: Krónan (2009) frumflutningur á Íslandi
Þuríður Jónsdóttir: Nýtt einleiksverk fyrir óbó - frumflutningur
Þorbjörn B. Kolbrúnarson: Samtal 2 f. bassaflautu og rafhljóð - frumflutningur
Junichi Matsumoto: “Go Signal” úr “Sea Horizon” (2010) frumflutningur
FLYTJENDUR:
CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar:
Eydís Franzdóttir, óbó
Rúnar Óskarsson, klarinetta
Eiríkur Örn Pálsson, trompet
Sigurður Þorbergsson, básúna
Kolbeinn Bjarnason, flauta
Valgerður Andrésdóttir, píanó
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla
Sigurður Halldórsson, selló
Frank Aarnink, slagverk
Steef van Oosterhout, slagverk












