Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

útskriftartónleikar 2010 Eyrún Ósk Ingólfsdóttir

Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

Eyrún Ósk Ingólfsdóttir, sópran

Miðvikudagur 5. maí  kl. 20.00

Miðvikudaginn 5. maí kl. 20.00 heldur Eyrún Ósk Ingólfsdsóttir, sópran útskriftartónleika sína í Þjóðmenningarhúsi, en hún útskrifast með B.mus- gráðu frá tónlistardeild Listaháskólans í vor.  Á efnisskrá eru m.a. sönglög og aríur eftir E. Grieg, Schubert, Rodrigo, Charles Gounod, Mozart, Verdi,  Sigfús Einarsson og Hjálmar H. Ragnarsson.

Meðleikarar á tónleikunum eru Selma Guðmundsdóttir, píanó og Matthías Sigurðsson, klarínett.

Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/

———

Nú í vor útskrifar tónlistardeild Listaháskóla Íslands tuttugu og fimm nemendur en það er stærsti útskriftarhópur deildarinnar til þessa. Útskriftartónleikarnir eru í það heila tuttugu og tveir og standa til 30. maí n.k. Þar verða m.a. flutt ný verk eftir tónsmíðanemendur auk þess sem fram koma einleikarar á selló, harmóníku, píanó, flautu, gítar, orgel og þrír söngvarar. Þá verður einn fræðifyrirlestur.

Arkitektinn Hans Tryggvason heldur fyrirlestur

Opni 2010 Hans Tryggvason

Arkitektinn Hans Tryggvason heldur fyrirlesturinn:
„Hvaða möguleikar liggja í taktískri nálgun til hönnunar og þróunar þéttbýlis í leit að nýjum hönnunar aðferðum til að tryggja nýsköpun í hönnun og skipulagningu borga?¨  í Opna Listaháskólanum Skipholti 1, stofu 113, þriðjudaginn 4.maí kl. 12.05.

Unrealestates of Oslo er diplóma verkefni frá AHO í Osló, unnið af Hans Tryggvasyni og Christian Bratz haustið 2009.
Leitast er við að svara því hvort að hægt sé að nota fyrirbærið millibils- / tímabundinn urbanisma [Temporary urbanism] sem nothæft tæki / tól, fyrir arkitekta og skipuleggjendur til  hönnunar og framkvæmda á svæðum og byggingum þar sem aðstæður eru í senn erfiðar og óljósar fyrir hefbundna hönnun og skipulags áætlanir.

Verkefnið er hönnunar sem og rannsóknarverkefni (case study) þar sem hugmyndafræði, aðferðarfræði og praktík fléttast saman og eru svo “prófuð” í raunverulegum aðstæðum.

Doug Goodkin með námskeið fyrir tónlistarkennara og tónlistarnemendur

Doug Goodkin-2010 listkennsla

Dagana 3-5.maí heldur Doug Goodkin endurmenntunarnámskeið fyrir tónlistarkennara í húsnæði Listkennsludeildar LHÍ. Námskeiðið er haldið á vegum SÓTI (Samtök Orff tónmennta á Íslandi) og listkennsludeildar LHÍ.

Doug mun að auki halda námskeið miðvikudaginn 5. maí frá kl. 9.00 - 13.00 fyrir tónlistarnemendur í listkennsludeild, en það er einnig opið fyrir nemendur tónlistardeildar LHÍ og tónmenntakennaradeildar HÍ.

Doug Goodkin er eftirsóttur tónlistarkennari og fyrirlesari. Hann kennir eftir menntunarleiðum Carl Orffs og hefur síðustu 34 árin starfað með börnum og unglingum í San Francisco School, þar sem hann kennir börnum á aldrinum 3- 17 ára, tónlist og hreyfingu. Hann hefur auk þess ferðast út um allan heim til að kynna kennsluaðferðir sínar og hugmyndafræði. Doug hefur skrifað og gefið út átta bækur auk greina í hin ýmsu tímarti um tónlistaruppeldi og áhrif tónlistar á einstaklinginn og samfélagið. Margir þekkja frábærar bækur hans og er þá helst að nefna Play sing and dance og Nows the time teaching jazz to all ages, en hann er mikill jass áhugamaður og jasspíanisti í aukavinnu.
Allar upplýsingar eru á heimasíðu hans sem er: http://www.douggoodkin.com/

Nordic Panoramic Interchange í Reykjavík

panoramic

NORDIC PANORAMIC INTERCHANGE í Reykjavík

Nordic Panoramic Interchange hópurinn sem hittist fyrst í Bergen í nóvember s.l. og aftur í Vilnius í febrúar sækir nú Listaháskólann heim og tekur þátt í vikulöngu námskeiði í myndlistardeild dagana 3.-7.maí.  Auk fjölbreyttrar dagskrár mun hópurinn skoða sýningar í borginni og ferðast um Suðurland í átt að gosstöðvunum í Eyjafjallajökli.  Umsjón með verkefninu fyrir hönd Listaháskólans hefur Hulda Stefánsdóttir, prófessor í myndlist, og nemendur sem taka þátt eru þau Bryndís Björnsdóttir, Sindri Snær S. Leifsson og Baldvin Einarsson.

Nordic Panoramic Interchange verkefnið hlaut rausnarlegan styrk frá menntaáætlun norrænu ráðherranefndarinnar.  Þáttökuskólarnir fjórir sem allir eru meðlimir í KUNO, norrænu samstarfsneti myndlistarháskóla,  gangast hver og einn fyrir vikulöngu námskeiði í sinni heimabyggð og endapunkturinn verður sýning og málþing í Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi í september.  Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu auk Listaháskólans eru Kunsthögskolan i Bergen, Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi og Vilnius Art Academy í Litháen.  Þátttakendur eru sextán talsins; fjórir frá hverjum skóla,  þrír nemendur og einn kennari.  Karen Kiphoff, prófessor við Kunsthögskolan í Bergen hefur leitt verkefnið frá upphafi en hún átti bæði hugmyndina að því og stýrði umsókninni á sínum tíma.

Verkefnið snýst um landslag í víðum skilningi þess orðs og voru þáttakandi lönd valin sérstaklega með það í huga að áfangastaðir námskeiðanna yrðu ólíkir út frá sjónarmiði landslags, landafræði, hefða, menningar, sögu og arkitektúrs. Viðfangsefnið er því ekki síður landslag borga og samfélaga en sveitar.

Opnuð hefur verið bloggsíða þar sem hægt er að fylgjast með framvindu verkefnisins og fræðast frekar um margslungnar hugmyndir að baki  hugtakinu „Víðmynd (panorama)”:http://panoramicinterchange.blogspot.com/

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 24. apríl - 9. maí

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2010. Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.

syning-2010-veikyndisyning-2010-opnun3syning-2010-imynd-kvenna

Vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, skrímslabangsar, samtímalistasafn, barnabækur, ýmis húsgögn, málverk, myndljóð, íslenskir draugar, ímynd kvenna, myndasögur, ljósmyndir, leturtýpur, trilla, tónletur, samgönguvél, þjóðsagnareyjan, perlaðar andlitsmyndir, gjörningar, tölvuleikur, áttundi dagur sköpunarsögunnar, port-hópur, þátttökulist…

Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu nemenda myndlistardeildar og hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskólans sem opnaði laugardaginn 24. apríl s.l. í Hafnarhúsi en mikið fjölmenni var á opnun.

Sýningin er í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur. Í ár eru um 79 útskriftarnemendur sem sýna verk sín, 47 í hönnunar-og arkitekúrdeild og 32 í myndlistardeild.

syning-2010-12syning-2010-opnun1

Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt með forvitni, áræði og framsækni að leiðarljósi.Sýningarstjórar eru: Daníel Karl Björnsson, Jóhann Sigurðsson og Björn Guðbrandsson.

Sýningin stendur til 9. maí og er opin daglega frá kl. 10.00 - 17.00, fimmtudaga frá 10.00 - 22.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna. Nánari upplýsingar veitir fræðsludeild safnsins í s: 590 1200 / netfang: fraedsludeild@reykjavik.is