Útskriftartónleikar Listaháskólans frá 17. apríl - 30. maí

Útskriftartónleikar plakat

Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

17. apríl - 30. maí 2010

Nú í vor útskrifar tónlistardeild Listaháskóla Íslands tuttugu og fimm nemendur en það er stærsti útskriftarhópur deildarinnar til þessa.

Laugardaginn 17. apríl hófst röð útskriftarviðburða tónlistardeildar Listaháskólans en það var Þorgerður Edda Hall, sellóleikari sem hélt tónleika í Þjóðmenningarhúsinu kl. 17.00.

Útskriftartónleikarnir eru í það heila tuttugu og tveir og standa til 30. maí n.k. Þar verða m.a. flutt ný verk eftir tónsmíðanemendur auk þess sem fram koma einleikarar á selló, harnóníku, píanó, flautu, gítar, orgel og þrír söngvarar. Þá verður einn fræðifyrirlestur.

Sú nýlunda er á að í vor er í fyrsta sinn verið að útskrifa nemendur með MA- gráðu frá tónlistardeild skólans en það eru þrír nemendur sem ljúka meistaragráðu í tónsmíðum. Einnig útskriftast í fyrsta sinn nemandi með BA-gráðu í kvikmyndatónlist, nemandi með BA- gráðu í orgelleik og nemandi með BA-gráðu í harmóníkuleik.

Útskriftartónleikar Listaháskólans eru kjörið tækifæri til að skyggnast inn í framtíð íslensks tónlistarlífs en margir þeirra nemenda sem þar koma fram hafa þegar vakið athygli sem efnilegir listamenn, og stefna ýmist að því að hella sér út í atvinnulífið, eða í framhaldsnám við virtar erlendar stofnanir.

Dagskrá tónleikanna má sjá hér: Útskriftartónleikar Listaháskólans 2010 - efnisskrá

16. apríl, 2010