Nordic Panoramic Interchange í Reykjavík
NORDIC PANORAMIC INTERCHANGE í Reykjavík
Nordic Panoramic Interchange hópurinn sem hittist fyrst í Bergen í nóvember s.l. og aftur í Vilnius í febrúar sækir nú Listaháskólann heim og tekur þátt í vikulöngu námskeiði í myndlistardeild dagana 3.-7.maí. Auk fjölbreyttrar dagskrár mun hópurinn skoða sýningar í borginni og ferðast um Suðurland í átt að gosstöðvunum í Eyjafjallajökli. Umsjón með verkefninu fyrir hönd Listaháskólans hefur Hulda Stefánsdóttir, prófessor í myndlist, og nemendur sem taka þátt eru þau Bryndís Björnsdóttir, Sindri Snær S. Leifsson og Baldvin Einarsson.
Nordic Panoramic Interchange verkefnið hlaut rausnarlegan styrk frá menntaáætlun norrænu ráðherranefndarinnar. Þáttökuskólarnir fjórir sem allir eru meðlimir í KUNO, norrænu samstarfsneti myndlistarháskóla, gangast hver og einn fyrir vikulöngu námskeiði í sinni heimabyggð og endapunkturinn verður sýning og málþing í Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi í september. Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu auk Listaháskólans eru Kunsthögskolan i Bergen, Kungliga Kunsthögskolan í Stokkhólmi og Vilnius Art Academy í Litháen. Þátttakendur eru sextán talsins; fjórir frá hverjum skóla, þrír nemendur og einn kennari. Karen Kiphoff, prófessor við Kunsthögskolan í Bergen hefur leitt verkefnið frá upphafi en hún átti bæði hugmyndina að því og stýrði umsókninni á sínum tíma.
Verkefnið snýst um landslag í víðum skilningi þess orðs og voru þáttakandi lönd valin sérstaklega með það í huga að áfangastaðir námskeiðanna yrðu ólíkir út frá sjónarmiði landslags, landafræði, hefða, menningar, sögu og arkitektúrs. Viðfangsefnið er því ekki síður landslag borga og samfélaga en sveitar.
Opnuð hefur verið bloggsíða þar sem hægt er að fylgjast með framvindu verkefnisins og fræðast frekar um margslungnar hugmyndir að baki hugtakinu „Víðmynd (panorama)”:http://panoramicinterchange.blogspot.com/












