Hinn heimsfrægi spænski gítarleikari Ignacio Rodes verður á Íslandi í byrjun maímánuðar á vegum Listaháskóla Íslands, Erasmus- verkefnisins og spænska konsúlatsins á Íslandi.
Hann mun kenna á opnu Masterklass námskeiði í Sölvhóli, sal Listaháskólans, laugardaginn 1. maí kl. 11.00 - 16.00.
Ignacio Rodes mun svo leika á einleikstónleikum í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu daginn eftir, sunnudaginn 2. maí, og hefjast tónleikarnir kl. 17.00. Aðgangur er ókeypis, en tónleikarnir eru samvinnuverkefni ofangreindra aðila og Þjóðmenningarhússins.
Ignacio Rodes hefur unnið til fyrstu verðlauna í fimm alþjóðlegum gítarkeppnum, þ. á m. þeim sem kenndar eru við “Andrés Segovia,” “Francisco Tárrega” og “José Ramirez.” Hann er almennt talinn einn af fremstu gítarleikurum sinnar kynslóðar í heiminum.
Ignacio fæddist í Alicante á Spáni. Hann hóf gítarnám hjá móður sinni, þá aðeins átta ára gamall. Síðar lærði hann hjá José Tomás í Conservatorio Superior “Oscar Esplá” - tónlistarháskólanum þar í borg og tók jafnframt þátt í námskeiðum hjá David Russell, Manuel Barrueco og John Williams. Frá 1983-1986 var hann við nám í London, en þá hafði hann hlotið styrk frá British Council og spænska menntamálaráðuneytinu til að fullnema sig í endurreisnartónlist og hljóðfæratónlist J. S. Bach.
Hann hélt “debut” - tónleika sína í Wigmore Hall í Lundúnum árið 1986. Síðan hefur hann haldið fjölda tónleika um allan heim, í sölum á borð við Alte Oper (Frankfurt), Alice Tully Hall-Lincoln Center (New York), Performing Art’s Center (San Francisco), Roetke Auditorium (Seattle), Chopin’s Museum (Warsaw), Philharmonic Major Hall (St. Petesburg), Palau de la Música (Barcelona), Auditorio Nacional (Madrid), Patio de los Arrayanes (Alhambra, Granada), Museo Chillida Leku (San Sebastián), Sala Nezahualcoyotl (México), Opera Theatre of Cairo, o.m.fl.
Honum hefur verið boðið að leika á alþjóðlegum tónlistarhátíðum í flestum löndum Evrópu, sem og víða í Bandaríkjunum og Suður-Ameríku, og jafnframt hefur hann kennt Master Class - námskeið í Manhattan School of Music (New York), Guildhall School of Music (London), Bloomington School of Music (Indiana University, USA) og University of Washington (Seattle, USA) svo fátt eitt sé nefnt. Ignacio Rodes hefur leikið í fjölda evrópskra og bandarískra útvarps- og sjónvarpsstöðva.
Hann hefur komið fram sem einleikari með English Chamber Orchestra, Belgrade Philharmonic Orchestra, Orquesta Simfonica de Barcelona i Nacional de Catalunya, Joven Orquesta Nacional de Espana, Hartford Simphony Orchestra, Theatre Hermitage’s Camerata of St. Petesburg, Orchestre de Picardie, Real Filarmonía de Galicia, Orquesta Sinfónica de Madrid, etc. Þá hefur hann leikið inn á fimm geisladiska sem gefnir hafa verið út í Lundúnum, sá síðasti hjá hinu virta útgáfufyrirtæki EMI Classics.
Ignacio Rodes hefur hvarvetna hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir leik sinn.
















