Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB hefur nú valið styrkþega árið 2010 úr stórum hópi umsókna í flokknum Leónardó mannaskipti/starfsmannaskipti. Verkefni Listaháskólans sem ber heitið “Art and Design in Post-crisis Environment” hlaut styrk uppá liðlega 24.000 evrur en verkefninu er ætlað að koma til móts við nýútskrifaða nemendur skólans á tímum mikilla þrenginga á vinnumarkaði. Markmið verkefnisins er að styrkja átta-tíu útskrifaða nemendur til starfsnáms í Evrópu. Í forgangshópi eru þeir sem nú eru án atvinnu.
Á skólaárinu sem leið tóku sjö útskrifaðir nemendur skólans þátt í sams konar verkefni og luku fjögurra til sextán vikna starfsþjálfun í fyrirtækjum af ýmsum toga í Þýskalandi, Bretlandi, Svíþjóð, Belgíu og á Ítalíu. Starfsreynsla erlendis er ómetanlegt tækifæri fyrir unga hönnuði og listamenn og skiptir sköpun fyrir samfélagið í heild sinni.
Það er skólanum mikil ánægja að geta á ný boðið nýútskrifuðum nemendum uppá Leónardó starfsþjálfunarstyrki. Styrktímabilið sem um ræðir er 1.júní 2010 - 31.maí 2011. Nemendur sem óska eftir að nýta sér styrkinn er bent á að hafa samband við Ölmu Ragnarsdóttur alþjóðafulltrúa og verkefnisstjóra í gegnum netfangið alma@lhi.is.














