Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands
Matthías Arnalds Stefánsson, nýmiðlar
Fimmtudagur 27. maí kl. 20.00 í Listasafni Íslands
Fimmtudaginn 27. maí kl. 20.00 heldur Matthías Arnalds útskriftartónleika sína í Listasafni Íslands en hann útskrifast með BA-gráðu í nýmiðlun frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Á tónleikunum verður frumflutt verkið New Clear Vision eftir Matthías Arnalds.
Um verkið segir hann: Verkið “New Clear Vision” byggir á yfirtónum og aflmótun á tónum. Verkið er skrifað fyrir fjögur rafhljóðfæri sem eru leidd gegnum tölvu þar sem tónarnir eru tíðnigreindir og aflmótaðir til að styrkja yfirtóna og beygja yfirtónaraðir leiknu nótnanna að hvor annarri. Með þessu móti reyni ég að fanga nýjan hljóðheim þar sem kafað er dýpra í tónana. M.A.S.
Flytjendur eru: Karlotta Laufey Halldórsdóttir, Sindri Eldon, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Skúli Agnarr Einarsson, Ingimundur Guðmundsson, Halldór Eldjárn og Gunnar Jónasson.
—- Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/












