Art in Translation International - Conference on Language and the Arts

art-in-transl-2010

Art in Translation
International Conference on Language and the Arts
Norræna húsið 27. maí -29. maí 2010

Á ráðstefnunni um tungumál og listir verður fjallað um hvernig list-umræða handan við mörk tungumála mótar listræna sköpun, viðtöku og túlkun í heimsvæddu umhverfi. Alþjóðlegir fræðimenn, stúdentar, listamenn og fólk úr atvinnulífinu munu kynna og halda erindi á ráðstefnunni um fjölbreytt efni, til dæmis um ritlist á Íslandi, pólitík í rekstri pólskra listasafna, aðferðir við að kenna tónlist frá Balí í Bandaríkjunum og hvernig setja á upp Shakespeare í japönskum listasöfnum.

Opnunar-fyrirlestra flytja rithöfundurinn og þýðandinn Guðbergur Bergsson og finnsku listamennirnir Lea og Pekka Kantonen. Á meðal annarra viðburða má nefna sýningu á myndinni Tales from the Gimli Hospital eftir íslensk-kanadíska kvikmyndagerðarmanninn Guy Maddin og tónleika þar sem lög Billie Holiday verða flutt á norsku. Samhliða ráðstefnunni verður sýningin a book of fragments, sem byggð er á væntanlegri bók eftir Birnu Bjarnardóttur, opin í Norræna húsinu dagana 27. maí til 13. júní.

Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis er á alla dagskrárliði hennar nema sýningu á kvikmyndinni. Upplýsingar um skráningu og tímasetningu er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar

Sjá nánar dagskrá ráðstefnunnar á heimasíðunni: http://conference.inotherwords.is

27. maí, 2010