Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands
Högni Egilsson, tónsmíðar
Laugardagur 29. maí kl.16.00 í Þjóðmenningarhúsi
Laugardaginn 29. maí kl.16.00 heldur Högni Egilsson útskriftartónleika sína í Þjóðmenningarhúsi en hann útskrifast með BA-gráðu í tónsmíðum nú í vor frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Á tónleikunum verður frumflutt verkið Án titils, fyrir kammersveit og auk þess verða flutt verkin Laud, fyrir einleiksfiðlu og kammersveit og Án titils - Tilbrigði við Ramifacations eftir G.Ligeti fyrir málmblásturshljóðfæraleikara. Öll eru verkin samin á tímabilinu 2008-2010.
Um verkin segir Högni:
Laud, fyrir einleiksfiðlu og kammersveit er samið sumarið 2009 á sundlaugarbakka á Ítalíu - fyrir tónlistarhátíðina Við djúpið. Verkið var frumflutt af kammersveitinni Ísafold.
Án titils, fyrir kammersveit er samið nýlega í Reykjavík í tilefni af útskrift úr Listaháskóla Íslands.
Án titils. Tilbrigði við Ramifacations eftir G.Ligeti fyrir málmblásturshljóðfæraleikara. Verkið er samið í Eistlandi sumarið 2008 fyrir málmblásturshópinn Wonderbrass.
H.E.
Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/









