Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

andres_ramon útskriftartónleikar 2010aki_asgeirsson útskriftartónleikar 2010

Andrés Ramón, Áki Ásgeirsson og Páll Ivan Pálsson - MA í tónsmíðum

Sunnudaginn 30. maí lauk röð útskriftartónleika tónlistardeildar Listaháskólans en í ár útskrifast tuttugu og fimm nemendur en það er stærsti útskriftarhópur deildarinnar til þessa.

Í ár útskrifast í fyrsta sinn nemendur með MA-gráðu frá tónlistardeild skólans en það eru þrír nemendur sem ljúka meistaragráðu í tónsmíðum. Það eru þeir Andrés Ramón, Áki Ásgeirsson og Páll Ivan Pálsson en þeir héldu útskriftartónleika sína í Sölvhól, tónleikasal Listaháskólans sunnudaginn 30. maí n.k.

Á sunnudaginn kl. 15.00 voru frumflutt verkin 304° fyrir eitt píanó eftir Áka Ásgeirsson og Loret ipsum eftir Pál Ivan Pálsson . Kl. 17.00 voru svo frumflutt verk Andrésar Ramón, Polaroids of Spiritual Landscapes  - í nokkrum stuttum þáttum fyrir kammersveit.

Tónskáldin segja um verkin:

Polaroids of Spiritual Landscapes er verk fyrir kammersveit sem byggir á rannsóknum á kólumbískri þjóðlagatónlist sem Andrés hefur stundað við Listaháskóla Íslands.  Verkið er í nokkrum stuttum þáttum sem endurspegla tónlistararf Kólumbíu, en þar er um að ræða ótalmarga tónlistarstíla og hljóðfæri sem hafa mótast af þeirri einstöku blöndun þriggja menningarheima sem hefur átt sér stað í Kólumbíu og í flestum löndum Suður-Ameríku síðan 1500. Hér er átt við arf suðuramerískra indíána sem og afrískra þræla og evrópskra innflytjenda. Þættirnir í verkinu byggja á fjölbreyttum tónlistarstílum og nota hryn og hljóðfæri úr mismunandi svæðum Kólumbíu, en hljóðfæraskipanin samanstendur af hefðbundnum evrópskum hljóðfærum sem og hljóðfærum úr þjóðlagahefð Kólumbíu.   A.R.

304° fyrir eitt píanó er skrifað fyrir Tinnu Þorsteinsdóttur í apríl 2010. Við gerð verksins notast höfundur við forrit sitt, CRIP, til útfærslu tónefnisins. CRIP forritið var þróað sem hluti af meistaranámi við Listaháskóla Íslands árið 2009-2010.   Á.Á

Loret ipsum - Dolor sit amet, consectetur adipisicing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui officia deserunt mollit anim id est laborum. P.I.P

Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/

28. maí, 2010