Ráðning í stöðu prófessors í arkitektúr

Steinþór Kári 2010

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Steinþór Kára Kárason í stöðu prófessors í arkitektúr frá og með 1. ágúst. Þrettán umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat átta þeirra hæfa þar af sex “vel hæfa” til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans. Dómnefnd skipuðu þau dr. Gunnar Harðarson, Albína Thordarson, og Steve Christer.

Steinþór Kári lagði stundaði nám í arkitektúr við ariktektúrdeild EPFL háskólans í Lausanne í Sviss, þaðan sem hann lauk námi 1998. Á árunum 1995-96 vann hann á hinni víðfrægu vinnustofu Tony Fretton Architects í London. Að námi loknu flutti hann til Íslands þar sem hann hóf störf hjá Studio Granda og vann þar óslitið til 2003. Steinþór Kári flutti þá aftur til London og starfaði sem umsjónararktiekt hjá Tony Fretton um meira en eins árs skeið.

Árið 2004 flutti Steinþór aftur til Íslands og stofnaði ásamt með Ásmundi H. Sturlusyni arkitektastofuna Kurtogpí, ásamt því að taka við stöðu fagstjóra í arkitektúr við Listaháskólann. Steinþór Kári gengdi stöðu fagstjóra til 2006.  Á þeim rúmum fimm árum sem Kurtogpí hefur verið starfandi hafa þeir félagar teiknað og fengið byggðar eftir sig minni og stærri byggingar, tekið þátt í samkeppnum, unnið að sýningarstjórnun og sýningarhönnun, tekið þátt í sýningum og verið virkir í kennslu og umræðu um byggingalist. Meðal nýjustu verka má nefna nýtt húsnæði fyrir i8 Gallery, einbýlishús við Hjálmakur og byggingu Menntaskóla Borgarfjarðar, en fyrir hana hlutu þeir Menningarverðlaun DV og komust í úrslit í AR Awards for Emerging Architecture.

Með ráðningu Steinþórs Kára er í fyrsta sinn ráðið í stöðu prófessors í arkitektúr á Íslandi. Þetta eru því nokkur tímabót, ekki bara fyrir skólann heldur ekki síður fyrir þróun arkitektúrs í landinu.

29. maí, 2010