Listaháskólinn í hópi Leónardó styrkhafa 2010

def-flag-logoeac-llp_en

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB hefur nú valið styrkþega árið 2010 úr stórum hópi umsókna í flokknum Leónardó mannaskipti/starfsmannaskipti.  Verkefni Listaháskólans sem ber heitið “Art and Design in Post-crisis Environment” hlaut styrk uppá liðlega 24.000 evrur en verkefninu er ætlað að koma til móts við nýútskrifaða nemendur skólans á tímum mikilla þrenginga á vinnumarkaði.  Markmið verkefnisins er að styrkja átta-tíu útskrifaða nemendur til starfsnáms í Evrópu.  Í forgangshópi eru þeir sem nú eru án atvinnu.

Á skólaárinu sem leið tóku sjö útskrifaðir nemendur skólans þátt í sams konar verkefni og luku fjögurra til sextán vikna starfsþjálfun í fyrirtækjum af ýmsum toga í Þýskalandi, Bretlandi, Svíþjóð, Belgíu og á Ítalíu.  Starfsreynsla erlendis er ómetanlegt tækifæri fyrir unga hönnuði og listamenn og skiptir sköpun fyrir samfélagið í heild sinni.

Það er skólanum mikil ánægja að geta á ný boðið nýútskrifuðum nemendum uppá Leónardó starfsþjálfunarstyrki.  Styrktímabilið sem um ræðir er 1.júní 2010 - 31.maí 2011.  Nemendur sem óska eftir að nýta sér styrkinn er bent á að hafa samband við Ölmu Ragnarsdóttur alþjóðafulltrúa og verkefnisstjóra í gegnum netfangið alma@lhi.is.

30. maí, 2010