Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

hogni_egilsson útskriftartónleikar

Högni Egilsson, tónsmíðar

Laugardagur 29. maí kl.16.00 í Þjóðmenningarhúsi

Laugardaginn 29. maí kl.16.00 heldur Högni Egilsson útskriftartónleika sína í Þjóðmenningarhúsi en hann útskrifast með BA-gráðu í tónsmíðum nú í vor frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Á tónleikunum verður frumflutt verkið Án titils, fyrir kammersveit og auk þess verða flutt verkin Laud, fyrir einleiksfiðlu og kammersveit og Án titils - Tilbrigði við Ramifacations eftir G.Ligeti fyrir málmblásturshljóðfæraleikara. Öll eru verkin samin á tímabilinu 2008-2010.

Um verkin segir Högni:

Laud, fyrir einleiksfiðlu og kammersveit er samið sumarið 2009 á sundlaugarbakka á Ítalíu - fyrir tónlistarhátíðina Við djúpið.  Verkið var frumflutt af kammersveitinni Ísafold. 

Án titils, fyrir kammersveit er samið nýlega í Reykjavík í tilefni af útskrift úr Listaháskóla Íslands.

Án titils. Tilbrigði við Ramifacations eftir G.Ligeti fyrir málmblásturshljóðfæraleikara. Verkið er samið í Eistlandi sumarið 2008 fyrir málmblásturshópinn Wonderbrass.

H.E.

Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/

Art in Translation International - Conference on Language and the Arts

art-in-transl-2010

Art in Translation
International Conference on Language and the Arts
Norræna húsið 27. maí -29. maí 2010

Á ráðstefnunni um tungumál og listir verður fjallað um hvernig list-umræða handan við mörk tungumála mótar listræna sköpun, viðtöku og túlkun í heimsvæddu umhverfi. Alþjóðlegir fræðimenn, stúdentar, listamenn og fólk úr atvinnulífinu munu kynna og halda erindi á ráðstefnunni um fjölbreytt efni, til dæmis um ritlist á Íslandi, pólitík í rekstri pólskra listasafna, aðferðir við að kenna tónlist frá Balí í Bandaríkjunum og hvernig setja á upp Shakespeare í japönskum listasöfnum.

Opnunar-fyrirlestra flytja rithöfundurinn og þýðandinn Guðbergur Bergsson og finnsku listamennirnir Lea og Pekka Kantonen. Á meðal annarra viðburða má nefna sýningu á myndinni Tales from the Gimli Hospital eftir íslensk-kanadíska kvikmyndagerðarmanninn Guy Maddin og tónleika þar sem lög Billie Holiday verða flutt á norsku. Samhliða ráðstefnunni verður sýningin a book of fragments, sem byggð er á væntanlegri bók eftir Birnu Bjarnardóttur, opin í Norræna húsinu dagana 27. maí til 13. júní.

Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis er á alla dagskrárliði hennar nema sýningu á kvikmyndinni. Upplýsingar um skráningu og tímasetningu er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar

Sjá nánar dagskrá ráðstefnunnar á heimasíðunni: http://conference.inotherwords.is

Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

matthias-arnalds-stefansson útskriftartónleikar 2010

Matthías Arnalds Stefánsson, nýmiðlar

Fimmtudagur 27. maí kl. 20.00 í Listasafni Íslands

Fimmtudaginn 27. maí kl. 20.00 heldur Matthías Arnalds útskriftartónleika sína í Listasafni Íslands en hann útskrifast með BA-gráðu í nýmiðlun frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Á tónleikunum verður frumflutt verkið New Clear Vision eftir Matthías Arnalds.

Um verkið segir hann: Verkið “New Clear Vision” byggir á yfirtónum og aflmótun á tónum. Verkið er skrifað fyrir fjögur rafhljóðfæri sem eru leidd gegnum tölvu þar sem tónarnir eru tíðnigreindir og aflmótaðir til að styrkja yfirtóna og beygja yfirtónaraðir leiknu nótnanna að hvor annarri. Með þessu móti reyni ég að fanga nýjan hljóðheim þar sem kafað er dýpra í tónana.   M.A.S.

Flytjendur eru: Karlotta Laufey Halldórsdóttir, Sindri Eldon, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Skúli Agnarr Einarsson, Ingimundur Guðmundsson, Halldór Eldjárn og Gunnar Jónasson.

—- Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/

Tónlist, merking og aðferð

westney 2010

Laugardaginn 29. maí, kl. 10.00-12.00, verður haldin ráðstefna um tónlistarrannsóknir í Skála, í byggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Umfjöllunarefnið er tónlist og rannsóknir á tónlist.

Píanóleikarinn William Westney og tónlistarheimspekingurinn Cynthia M. Grund flytja erindi um „tónlistarflutning sem rannsóknarferli” en þau eru á Íslandi í boði Háskólans á Bifröst og kenna þar námskeið um fjölháttamiðlun (multimodality) í samhengi tónlistar. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst, gerir grein fyrir rannsókn á fagurfræði tónleika og tilbrigði við tónleika sinfóníuhljómsveita; Helga Rut Gudmundsdottir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjallar um rannsókn sína á þætti foreldra í tónlistarkennslu ungbarna; og Sigrùn Lilja Einarsdottir, doktorsnemi við Exeterháskóla, skýrir frá tónlistarfélagsfræðilegri rannsókn sinni á upplifun og reynslu kórmeðlima í Croydon Bach kórnum í London á flutningi H-moll messu e. J.S. Bach.

Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og fer fram á ensku.  Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


Dagskrá:

William Westney and Cynthia M. Grund:             “Musical Performance as a Process of Inquiry”

Njörður Sigurjónsson:                                                  “The Meaning of the Concert”

Helga Rut Gudmundsdottir:                                      “Musical Parenting in Iceland: A Study with Young Mothers in a Parent-Infant Music Course”

Sigrùn Lilja Einarsdottir:                                            “Bach in Everyday Life and the Experience of Performing ‘Art Music’: The Case of the Croydon Bach Choir in London    Performing Bach´s Mass in B Minor.”

William Westney leikur einnig á tónleikum í Salnum í Kópavogi föstudaginn 28. maí klukkan 19.30.

—–

Research Seminar: Music, Meaning and Method

10:00 a.m., Saturday, May 29, 2010

University of Iceland, Reykjavik. Venue: Skáli.

Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

þordur_gudmundur_hermannsson útskriftartónleikar 2010

Örn Eldjárn, kvikmyndatónlist

Þórður Hermannsson, nýmiðlar

Miðvikudagur 26. maí kl. 16.00 í Regnboganum.

Miðvikudaginn 26. maí kl. 16.00 halda Örn Eldjárn og Þórður Hermannsson útskriftartónleika sína í Regnboganum. Báðir útskriftast þeir með BA-gráðu frá tónlistardeild Listaháskólans í vor, Þórður í nýmiðlun og Örn Eldjárn í kvikmyndatónlist en hann er fyrsti nemandi sem lýkur B.A. gráðu í kvikmyndatónlist frá Listaháskóla Íslands.

Á tónleikunum verður frumflutt verkið Óður til flugmanns eftir Þórð Hermannsson og valin atriði úr kvikmyndinni Mona eftir lettneska leikstjórann Inara Kolmane en tónlistin í þeim atriðum er eftir Örn Eldjárn.

Tónskáldin segja um verkin:

Sýnd verða valin atriði úr kvikmyndinni Mona eftir lettneska leikstjórann Inara Kolmane. Tónlistin í myndinni er unnin í sameiningu af Hilmar Erni Hilmarsson og Erni Eldjárn og verða sýnd þau atriði hvar tónlistin er einvörðungu samin af Erni Eldjárni. Mona er lettnesk kvikmynd eftir leikstjórann Inara Kolmane og er fyrsta kvikmynd í fullri lengd sem gerð er þar í landi síðan Sovétríkin liðu undir lok. Í myndinni segir frá manni sem erfir hús eftir frænda sinn í litlum smábæ í Lettlandi og kynnist hann þar stúlku sem hann verður ástfangin af en ekki eru allir jafn sáttir við komu mannsins og fyrirætlanir hans. Ö.E

Óður til flugmanns segir sögu af flugmanni sem að er kallaður til vinnu sem orrustuflugmaður í styrjöld. Hvort sem þetta er seinni, fyrri eða sú þriðja er óvitað enda óviðeigandi í þessu samhengi þar sem að stríð verðu alltaf stríð, upphafið og orsökin ávallt sú sama. En aðalástríða flugmannsins liggur hins vegar ekki í verkefninu sem hann þarf að þreyta heldur lifir hann fyrir djúpar dýfur í gegnum skýin og frjálst flug í háloftunum. Í gegnum ævintýrið lendir flugmaður í mörgum ögrandi verkefnum og hættulegum áskorunum sem leiða á endanum til dauða hans þar sem hann þarf að takast á við átakanleg mál sálarinnar sem hann hefur lengi ýtt til hliðar. Þ.H

—-

Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna á: http://lhi.is/2010/04/16/utskriftartonleikar-tonlistardeildar-listahaskola-islands-fra-17-april-30-mai-2010/