Mikil aðsókn í Listaháskólann

img_1678

Inntöku í allar deildir Listaháskóla Íslands fyrir veturinn 2010-11 er nú lokið en inntökupróf og viðtöl fóru fram í apríl og maí.

Fjöldi umsókna barst á allar brautir. Umsóknir sem bárust eru alls 691 sem er langt umfram það sem skólinn getur orðið við og er um töluverða aukningu umsókna í sumar deildir að ræða.

Í hönnunar-og arkitektúrdeild sóttu 231 um, 229 sóttu um í leiklistardeild, 96 í myndlistardeild, 83 í tónlistardeild og 52 í listkennsludeild.

Í haust hefja 172 nýnemar nám við skólann sem eru 24,8% umsækjenda. Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst n.k.

Framtíðarsýn í listkennslu

Framtíðarsýn 2010 logo

Í vor tóku fimm nemendur í listkennsludeild valnámskeið sem bar titilinn ,,Framtíðarsýn í listkennslu”. Vigdís Jakobsdóttir stýrði þessum áfanga sem var ætlað að þjálfa nemendur í gagnrýnni og faglegri umræðu um listkennslu og spegla að lokum e.k. framtíðarsýn í listkennslu út í samfélagið.

Nemendurnir völdu að vinna heimildamynd með viðtölum þar sem eftirfarandi spurning var lögð fyrir ýmsa ráðamenn (m.a. Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra), skólafólk og listafólk úr ýmsum áttum:

,,Ef skólakerfinu yrði umbylt á morgun og helmingi alls tíma grunnskólanemenda yrði varið í listgreinar, hverju myndi það breyta fyrir nemendur, kennara og samfélagið almennt?”

Svör viðmælenda komu listkennslunemum ánægjulega á óvart, svo ekki sé meira sagt, en mikill meðbyr virðist vera með auknu vægi skapandi greina í skólakerfinu þó nálgun og röksemdafærsla fyrir gildi þeirra sé á ýmsa lund.

Listkennslunemarnir sem unnu verkefnið eru: Ásdís Arnardóttir, Dagur Óskarsson, Helga Óskarsdóttir, Jón Magnússon og Sylvía Kristjánsdóttir:

Heimildamyndina má nálgast hér:  http://framtidarsyn.wordpress.com/

Listaháskóli Íslands auglýsir starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild

Skipholtlhi1

Listaháskóli Íslands auglýsir starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild

Laust er til umsóknar starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar-og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Umsækjendur skulu vera vöruhönnuðir og hafa háskólagráðu á sínu sviði. Þeir skulu jafnframt hafa reynslu af kennslu og stjórnun í hönnun og almenna þekkingu á starfsemi háskóla. Um er að ræða 50% starfshlutfall.

Helstu viðfangsefni fagstjóra í vöruhönnun er að sinna stjórnun og kennslu á sviði vöruhönnunar og taka þátt í þróun námsbrautarinnar innan skólans.

Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og listræna vinnu, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, sýningarhald og útgefið efni um eigin verk og listferil og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og hönnun. Einnig skal greina frá viðeigandi vefslóðum og verkum sem umsækjandi hefur sett á veraldarvefinn. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja. Umsækjandi skal senda með yfirlit um námsferil sinn og afrit af prófskírteinum, og hann skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf og störf  á vettvangi listsköpunar og/eða listflutnings. Loks er til þess ætlast að umsækjandi láti fylgja með afrit af prófskírteinum og staðfestar umsagnir um helstu störf.

Hlutverk fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild er auk almennrar kennslu að hafa umsjón með námi nemenda í vöruhönnun, veita ráðgjöf og gagnrýni á verk nemenda, og í samráði við deildarforseta og prófessors í vöruhönnun stýra þeim verkefnum sem lúta að skólastarfinu. Hann skal vera virkur þátttakandi í því samfélagi listanna sem skólinn byggir upp. Kennarinn vinnur að uppbyggingu deildarinnar undir stjórn deildarforseta og tekur þátt í mótun akademískrar stefnu fyrir skólann. Við ráðningu í stöðuna verður m.a. tekið tillit til þeirra hæfileika sem ætla má að umsækjandinn hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans.

Starf fagstjóra í vöruhönnun skiptist í kennslu og stjórnun. Rektor ræður í starfið í samráði við deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar. Gert er ráð fyrir að fagstjórinn hefji störf 1. ágúst 2010. Launakjör samkvæmt samkomulagi.

Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila eigi síðar en 28. júní n.k. til Listaháskóla Íslands, aðalskrifstofu Skipholti 1, 105 Reykjavík. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Útskrift Listaháskóla Íslands

utskrift-2010-5

Listaháskóli Íslands brautskráði nemendur frá skólanum á hátíðarsamkomu sem haldin var á Stóra sviði Borgarleikhúsins, laugardaginn 12. júní s.l.

Með brautskráningu lauk ellefta starfsári Listaháskólans. Alls útskrifuðust að þessu sinni 122 nemendur, 101 nemendur með fyrstu háskólagráðu en skipting á milli deilda er: 32 í myndlistardeild, 45 í hönnunar- og arkitektúrdeild, 17 í tónlistardeild og 7 í leiklistardeild. Þá útskrifuðust 18 nemendur með diplómapróf  til kennsluréttinda og 2 nemendur með diplóma í tónlist. Þau tímamót urðu einnig að Listaháskólinn útskriftar sína fyrstu nemendur af meistarastigi í vor. Þar er um að ræða nemendur með meistarapróf í tónsmíðum.

Auk ávarpa rektors og fulltrúa nemenda voru á dagskránni hátíðarræða og listflutningur. Danshópur Ernu Ómarsdóttur, Shalala, sýndi atriði úr sýningunni Teach us to Outgrow our Madness, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari flutti tónverkið Eter eftir Hauk Tómasson og sýnt var brot úr vídeóverkinu My & My Mother 2010 eftir Ragnar Kjartansson myndlistarmann. Vigdís Finnbogadóttir flutti hátíðarræðu.

Kynnir samkomunnar var Tinna Sverrisdóttir nemandi í leiklistardeild.

Hér má sjá ávarp rektors á skólaslitum - Skólaslit 2010 ávarp rektors

Ráðning í stöðu prófessors í leiklist

Stefán Jónsson

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Stefán Jónsson, leikara og leikstjóra, í stöðu prófessors í leiklist frá og með 1. ágúst. Níu umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat sjö þeirra hæfa þar af fjóra “vel hæfa” til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans. Dómnefnd skipuðu þau dr. Torfi Tulinius, Kristín Jóhannesdóttir og Stefán Baldursson.

Stefán útskrifaðist sem leikari frá Guildhall School of Music and Drama, London, árið 1989. Áður hafði hann stundað nám í frönsku og franskri menningu við útlendingadeild Université Paul Valéry í Montpellier, Frakklandi. Stefán lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1984.

Starfsreynsla Stefáns er víðtæk, bæði sem leikari, leikstjóri og kennari. Á árunum 2005-08 var hann fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið og 2003-05 hjá Borgarleikhúsinu. Þá hefur hann sett upp sýningar með ýmsum áhugaleikfélögum og Nemendaleikhúsi Listaháskólans. Meðal helstu sýninga sem Stefán hefur leikstýrt eru Kvetch, Sporvagninn Girnd, Belgíska Kongó, Forðist okkur, Túskildingsóperan, Leg, Óhapp, Eftirlitsmaðurinn og Hænungarnir.

Sem leikari starfaði Stefán lengst hjá Þjóðleikhúsinu, eða frá 1992 – 2002, en áður hafði hann leikið hjá Borgarleikhúsinu um þriggja ára skeið. Þá hefur Stefán komið fram sem leikari í fjölda kvikmynda, sjónvarpsmynda og í útvarpsleikritum.

Stefán hefur gegnt stöðu fagstjóra leikarabrautar við Listaháskólann frá 2008 og áður kennt sem stundakennari í leiktúlkun allt frá stofnun deildarinnar. Stefán hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir listræn störf sín, m.a. Grímuna 2003 fyrir bestu leikstjórn.