Ráðning í stöðu prófessors í leiklist

Stefán Jónsson

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið Stefán Jónsson, leikara og leikstjóra, í stöðu prófessors í leiklist frá og með 1. ágúst. Níu umsækjendur voru um starfið. Þriggja manna dómnefnd skipuð af stjórn skólans mat sjö þeirra hæfa þar af fjóra “vel hæfa” til að gegna starfinu miðað við starfssvið og skyldur eins og starfið var auglýst af hendi skólans. Dómnefnd skipuðu þau dr. Torfi Tulinius, Kristín Jóhannesdóttir og Stefán Baldursson.

Stefán útskrifaðist sem leikari frá Guildhall School of Music and Drama, London, árið 1989. Áður hafði hann stundað nám í frönsku og franskri menningu við útlendingadeild Université Paul Valéry í Montpellier, Frakklandi. Stefán lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1984.

Starfsreynsla Stefáns er víðtæk, bæði sem leikari, leikstjóri og kennari. Á árunum 2005-08 var hann fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið og 2003-05 hjá Borgarleikhúsinu. Þá hefur hann sett upp sýningar með ýmsum áhugaleikfélögum og Nemendaleikhúsi Listaháskólans. Meðal helstu sýninga sem Stefán hefur leikstýrt eru Kvetch, Sporvagninn Girnd, Belgíska Kongó, Forðist okkur, Túskildingsóperan, Leg, Óhapp, Eftirlitsmaðurinn og Hænungarnir.

Sem leikari starfaði Stefán lengst hjá Þjóðleikhúsinu, eða frá 1992 – 2002, en áður hafði hann leikið hjá Borgarleikhúsinu um þriggja ára skeið. Þá hefur Stefán komið fram sem leikari í fjölda kvikmynda, sjónvarpsmynda og í útvarpsleikritum.

Stefán hefur gegnt stöðu fagstjóra leikarabrautar við Listaháskólann frá 2008 og áður kennt sem stundakennari í leiktúlkun allt frá stofnun deildarinnar. Stefán hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir listræn störf sín, m.a. Grímuna 2003 fyrir bestu leikstjórn.

11. júní, 2010