Útskrift Listaháskóla Íslands
Listaháskóli Íslands brautskráði nemendur frá skólanum á hátíðarsamkomu sem haldin var á Stóra sviði Borgarleikhúsins, laugardaginn 12. júní s.l.
Með brautskráningu lauk ellefta starfsári Listaháskólans. Alls útskrifuðust að þessu sinni 122 nemendur, 101 nemendur með fyrstu háskólagráðu en skipting á milli deilda er: 32 í myndlistardeild, 45 í hönnunar- og arkitektúrdeild, 17 í tónlistardeild og 7 í leiklistardeild. Þá útskrifuðust 18 nemendur með diplómapróf til kennsluréttinda og 2 nemendur með diplóma í tónlist. Þau tímamót urðu einnig að Listaháskólinn útskriftar sína fyrstu nemendur af meistarastigi í vor. Þar er um að ræða nemendur með meistarapróf í tónsmíðum.
Auk ávarpa rektors og fulltrúa nemenda voru á dagskránni hátíðarræða og listflutningur. Danshópur Ernu Ómarsdóttur, Shalala, sýndi atriði úr sýningunni Teach us to Outgrow our Madness, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari flutti tónverkið Eter eftir Hauk Tómasson og sýnt var brot úr vídeóverkinu My & My Mother 2010 eftir Ragnar Kjartansson myndlistarmann. Vigdís Finnbogadóttir flutti hátíðarræðu.
Kynnir samkomunnar var Tinna Sverrisdóttir nemandi í leiklistardeild.
Hér má sjá ávarp rektors á skólaslitum - Skólaslit 2010 ávarp rektors









