Listaháskóli Íslands auglýsir starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild

Skipholtlhi1

Listaháskóli Íslands auglýsir starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild

Laust er til umsóknar starf fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar-og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Umsækjendur skulu vera vöruhönnuðir og hafa háskólagráðu á sínu sviði. Þeir skulu jafnframt hafa reynslu af kennslu og stjórnun í hönnun og almenna þekkingu á starfsemi háskóla. Um er að ræða 50% starfshlutfall.

Helstu viðfangsefni fagstjóra í vöruhönnun er að sinna stjórnun og kennslu á sviði vöruhönnunar og taka þátt í þróun námsbrautarinnar innan skólans.

Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og listræna vinnu, rannsóknir og ritsmíðar, fyrirlestra, sýningarhald og útgefið efni um eigin verk og listferil og aðrar þær upplýsingar sem tengjast listsköpun hans og hönnun. Einnig skal greina frá viðeigandi vefslóðum og verkum sem umsækjandi hefur sett á veraldarvefinn. Afrit af ritsmíðum og útgefnu efni skulu fylgja. Umsækjandi skal senda með yfirlit um námsferil sinn og afrit af prófskírteinum, og hann skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf og störf  á vettvangi listsköpunar og/eða listflutnings. Loks er til þess ætlast að umsækjandi láti fylgja með afrit af prófskírteinum og staðfestar umsagnir um helstu störf.

Hlutverk fagstjóra í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild er auk almennrar kennslu að hafa umsjón með námi nemenda í vöruhönnun, veita ráðgjöf og gagnrýni á verk nemenda, og í samráði við deildarforseta og prófessors í vöruhönnun stýra þeim verkefnum sem lúta að skólastarfinu. Hann skal vera virkur þátttakandi í því samfélagi listanna sem skólinn byggir upp. Kennarinn vinnur að uppbyggingu deildarinnar undir stjórn deildarforseta og tekur þátt í mótun akademískrar stefnu fyrir skólann. Við ráðningu í stöðuna verður m.a. tekið tillit til þeirra hæfileika sem ætla má að umsækjandinn hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til forystustarfa innan skólans.

Starf fagstjóra í vöruhönnun skiptist í kennslu og stjórnun. Rektor ræður í starfið í samráði við deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar. Gert er ráð fyrir að fagstjórinn hefji störf 1. ágúst 2010. Launakjör samkvæmt samkomulagi.

Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila eigi síðar en 28. júní n.k. til Listaháskóla Íslands, aðalskrifstofu Skipholti 1, 105 Reykjavík. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

25. júní, 2010