Mikil aðsókn í Listaháskólann
Inntöku í allar deildir Listaháskóla Íslands fyrir veturinn 2010-11 er nú lokið en inntökupróf og viðtöl fóru fram í apríl og maí.
Fjöldi umsókna barst á allar brautir. Umsóknir sem bárust eru alls 691 sem er langt umfram það sem skólinn getur orðið við og er um töluverða aukningu umsókna í sumar deildir að ræða.
Í hönnunar-og arkitektúrdeild sóttu 231 um, 229 sóttu um í leiklistardeild, 96 í myndlistardeild, 83 í tónlistardeild og 52 í listkennsludeild.
Í haust hefja 172 nýnemar nám við skólann sem eru 24,8% umsækjenda. Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst n.k.












