
Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL verður haldin í Reykjavík dagana 1. til 5. september n.k. en Listaháskólinn er meðal samstarfsaðila hátíðarinnar.
Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Einnig verður boðið upp á listamannaspjall eftir sýningar og haldið málþing um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi.
Eru allir áhugamenn um leikhús og listir hvattir til þess að gefa þessum frábæru norrænu listamönnum góðan gaum og skella sér í leikhús fyrstu helgina í september!
Eftirtaldir leikhópar eru gestir LÓKAL 2010:
TEATER FAAR 302 (Kaupmannahöfn)
Danir sýna Dværgen, kraftmikla leiksýningu byggða á sögu Pär Lagerkvist. Leikstjórinn er íslenskur, Egill Heiðar Anton Pálsson. Verkið er unnið í samstarfi við norska leikhópinn Værk Produksjoner.
DE UTVALGTE (Ósló)
Frá Noregi kemur sýningin Drømmen, sem fjallar um örlagarík kynni ungs manns og eldri konu í hjólhýsi á yfirgefnum tennisvelli. Sýningin byggir að nokkru leyti á sönnum atburðum og er sjónrænt meistaraverk.
TEATR WEIMAR (Malmö)
Svíar leggja hátíðinni til sýninguna Ibsen dekonstruktion 1 - Gengangere, en í þeirri leika tveir ungir menn, magnaða útgáfu af „Afturgöngum” Ibsens. Þeir
eru skeggjaðir, annar þeirra er í síðkjól og leikmyndin er slitinn chesterfieldsófi og fortjöld í 19. aldar stíl.
NYA RAMPEN (Helsinki)
Þessi finnski leikhópur fékk ekki leyfi til þess að setja upp leikritið „Undantekningin og reglan” eftir Brecht og ákvað því að gera sína eigin útgáfu af verkinu sem þau kalla Undantaget. Þetta er spennandi og skemmtileg úttekt á Brecht og möguleikum ungs fólks til þess að hafa áhrif á gang heimsins. Ekki má gleyma tónlistinni sem er hreint frábær!
KVISS BÚMM BANG (Reykjavík)
Hið óviðjafnanlega þríeyki, sem þekkt er fyrir lífstílsviðburði á borð við „Get a Life” og „The Norm Olympics” setur á svið fund fulltrúa helstu iðnríkja heims. Viðburðurinn kallast The Great Group of Eight en engir áhorfendur eru að honum, aðeins áhugasamir þátttakendur! Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu.
16 ELSKENDUR (Reykjavík)
Fyrir nokkru síðan settu forvitnir Íslendingar, sem mynda leikhópinn 16 elskendur, sig í samband við fjármálasnillinga frá Nígeríu. Útkoman úr samskiptum þeirra varð leiksýning sem þau kalla Nígeríusvindlið. Getur verið að skáldskapur sé í raun helsti drifkrafturinn í mannlegum samskiptum?
Sérstakir gestir LÓKAL 2010 eru RIMINI PROTOKOLL (Berlín), en þar er á ferðinni einn kunnasti leikhópur Evrópu. Þau vinna ekki með hefðbundnum leikurum, heldur „venjulegu” fólki. Sýning þeirra, Black Tie, er magnað „heimildaleikhús” um hinar ýmsu hliðar ættleiðinga. Rimini Protokoll hlaut evrópsku leiklistarverðlaunin 2008.
Nánari upplýsingar um dagskrána og sýningarnar er að finna á www.lokal.is
LÓKAL - alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík er rekin af Lókal - leiklistarhátíð ehf í samstarfi við eftirtalda aðila: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Nordisk Kulturfond, Iceland Express, Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Listaháskóla Íslands, Iðnó, Norræna húsið og Hótel Sögu.
