Ráðning í stöðu fagstjóra í vöruhönnun
Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður hefur verið ráðin fagstjóri í vöruhönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans frá og með 1. ágúst. Fimm umsóknir bárust um starfið. Tinna lauk BA prófi í þrívíðri hönnun frá West Surrey College of Art and Design á Englandi 1992 og MA prófi í iðnhönnun frá Domus Academy í Mílanó á Ítalíu 1997.
Tinna er reyndur hönnuður með fölbreytta starfsreynslu og með sterka listræna sýn. Tinna hefur sýnt verk sín á fjölmörgum sýningum vítt og breitt um heiminn, sjálf staðið fyrir rekstri myndlistar- og hönnunargallerís um þriggja ára skeið, og jafnframt verið sýningarstjóri á miklvægum sýningum. Hún hefur staðið fyrir framleiðslu og dreifingu á eigin vöru jafnt innanlands sem erlendis.












