Upphaf skólastarfs og nýnemakynning
Skólastarf í Listaháskóla Íslands hefst mánudaginn 23. ágúst, en þá hefst kennsla samkvæmt stundarskrá, hjá nemendum á öðru og þriðja ári skólans.
Sama dag verður einnig nýnemakynning og ætlast er til að allir nýir nemendur taki þar fullan þátt. Tilgangurinn er að kynna skipulag skólans og þjónustuna sem er í boði. Þá verða einnig afhentir lyklar, lykilorð og kynningarefni um skólann. Nýnemakynningin hefst á því að nemendur munu fara á kynningarfundi í sínum deildum og lýkur síðan með sameiginlegri skólasetningu fyrir alla nemendur Listaháskólans.
Dagskrá deilda:
Nemendur hönnunar- og arkitektúrdeildar kl. 10.00 - 14.00, Skipholti 1, stofu 113 (gengið inn Skipholtsmeginn). Nánari dagskrá má sjá hér.
Nemendur leiklistar- og dansdeildar kl. 12.00 - 14.30, Sölvhólsgötu 13
Nemendur listkennsludeildar kl. 13.00 - 15.00, Laugarnesvegi 91, húsnæði listkennsludeildar
Nemendur myndlistardeildar kl. 10.00 - 15.00, Laugarnesvegi 91, fyrirlestrarsalur. Nánari dagskrá má sjá hér.
Nemendur tónlistardeildar kl. 13.00, Sölvhólsgötu 13
Dagskránni lýkur með skólasetningu fyrir alla nemendur frá kl. 15.00 - 16.00 í húsnæði skólans, Laugarnesvegi 91. Þar verður stutt dagskrá, rektor ávarpar nemendur og boðið verður uppá kaffi og meðlæti.












