Líf eftir Listaháskólanám
Viðhorfskönnun fyrrum nemenda Listaháskóla Íslands sem útskrifuðust árin 2004 og 2007 frá Listaháskólanum.
Í apríl var gerð viðhorfskönnun meðal fyrrum nemenda Listaháskólans sem útskrifuðust árin 2004 og 2007 frá skólanum. Sambærileg könnun var gerð á síðasta skólaári á útskriftarhópum 2003 og 2006. Kannað var hvernig nám við Listháskólann hefur nýst fyrir framhaldsnám og störf ásamt því að skoða viðhorf útskrifaðra nemenda gagnvart skólanum. Niðurstöður benda til að fyrrverandi nemendur eru almennt mjög jákvæðir í garð Listaháskólans.
Markmið viðhorfskönnunarinnar var meðal annars að skoða nám og störf útskrifaðra en talið er að slík þekking geti nýst til að meta starf skólans. Þetta er í annað skiptið sem slík könnun er lögð fyrir og er ætlunin að framkvæma hana árlega.
Teknir voru fyrir tveir útskriftarhópar, að þessu sinni hópar sem luku námi árin 2004 og 2007. Þátttakendur voru beðnir um að leggja mat á námið í Listaháskóla Íslands og taldi 85% þátttakenda að námið hafa nýst þeim vel í verkefnum og störfum. Þeir voru einnig beðnir um að taka afstöðu til fullyrðinga um Listaháskólann sem mennta- og menningarstofnun og þar kom meðal annars fram að rúmlega 80% þátttakenda taldi að Listaháskólinn efli framsækna hugsun í listum og menningu í samfélaginu. Rúmlega helmingur útskrifaðra hafa haldið í frekara nám eða framhaldsnám eftir að hafa lokið námi frá Listaháskólanum.
Hér er hægt er að nálgast niðurstöður viðhorfskönnunarinnar - könnun meðal útskrifaðra 2004 og 2007












