Listaháskólinn settur
Mánudaginn 23. ágúst hófst kennsla í Listaháskólanum en skólinn hefur nú tólfta starfsár sitt. Nemendur í vetur verða alls um 480, og hafa aldrei verið fleiri.
Nýnemum var boðið á kynningu í deildum þar starfsemi skólans var kynnt fyrir þeim og var eftirvænting í loftinu. Um 180 nýnemar hefja nám við Listháskólann í haust, og eru þeir teknir inn í fimm deildir skólans, þ.e. leiklistar- og dansdeild (35), tónlistardeild (32), hönnunar- og arkitektúrdeild (54), myndlistardeild (27), og listkennsludeild (34).
Í lok dags var skólinn settur formlega við hátíðlega stemningu við húsnæði skólans í Laugarnesi en þar voru mættir nemendur, kennarar og starfsfólk til að gera sér glaðan dag. Rektor ávarpaði gesti og minntist sérstaklega á hve táknrænt það væri að skólinn skyldi nú settur undir beru lofti þar sem skólastarf er enn dreift vítt og breitt um borgina, og fyrirætlanir um nýja skólabyggingu hafa ekki enn ræst. Biðin eftir nýju skólahúsnæði hefur verið löng og það hlýtur að vera öllum kappsmál, ekki bara nemendum og starfsfólki skólans, að skólinn komist undir eitt þak og verði aflgjafi í þeirru hringiðu sem nútímaborgarmenning er.
Að loknu ávarpi rektors var boðið var upp á kakó, heimagerðar veitingar og ljúfa tónlist í flutningi nemendahljómsveitarinnar Orphic Oxtra.













