Heimsljós - íslensk sálumessa

Tryggvi M. Baldvinsson

Heimsljós - íslensk sálumessa  - Tryggvi M. Baldvinsson

Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld verður með hádegisfyrirlestur á vegum tónlistardeildar Listaháskólans í Sölvhóli föstudaginn 1. október kl. 12.00-12.45.
Í erindinu mun Tryggvi fjalla um tónverkið Heimsljós - íslensk sálumessa og þá þrjá þætti sem þar fléttast saman: Texta, tónlist og trú. Sérhver þessara þátta kallaði á skipulagningu og rannsóknir og verður gert grein fyrir þeim í þessu erindi. Einnig verða leikin tóndæmi úr verkinu.

Verkið verður flutt í útvarpinu á rás 1 fimmtudaginn 30. september kl. 19.00 og er það upptaka frá tónleikum Söngsveitarinnar Fílharmóníu 11. maí s.l. þar sem verkið var frumflutt.

Tryggvi M. Baldvinsson (1965) stundaði nám í Tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík, þar sem tónsmíðakennarar hans voru þeir Atli Heimir Sveinsson og Þorsteinn Hauksson. Hélt að því námi loknu, (1987), til Vínarborgar þar sem hann nam tónsmíðar og kontrapunkt hjá Reinhold Portisch við Konservatoríum Vínarborgar (1992). Tryggvi er nú deildarstjóri tónfræðagreina við Tónlistarskólann í Reykjavík og aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskólans, jafnframt sem hann sinnir tónsmíðum.

——

Erindi Tryggva er það fyrsta í fyrirlestraröð tónlistardeildar á haustönn 2010. Fyrirlestrarnir verða hálfsmánaðarlega í hádeginu á föstudögum og er dagskráin eftirfarandi:

1. október  - Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld: Heimsljós - íslensk sálumessa.

15. október  - Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt HÍ: Nótnalestur sem rannsóknarefni.

29. október  - Sigrún Lilja Einarsdóttir, doktorsnemi í tónlistarfélagsfræði við Exeter-háskóla í Englandi: The Amateur Choristers  -  Meaning and Affordance of Performing Art Music - The Case of the Croydon Bach choir in London performing Bachs B Minor Mass.

12. nóvember  - Dr. Kristín Jónína Taylor, píanóleikari: Þorkells Opuses Magnum: An Icelandic Musical Legacy.

26. nóvember  - Dr. Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ: Söngvasafnið Melódía og íslenskt tónlistarlíf á 17. öld.

Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Bakherbergið - Erla Þórarinsdóttir

bakherbergid-2010-erla-thorarins1

BAKHERBERGIÐ - HÁDEGISFYRIRLESTUR mán. 4.okt. kl. 12.30

Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður heldur hádegisfyrirlestur á vegum myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 4. okt. kl. 12.30

BAKHERBERGIÐ
Í haust hófst ný kynningarröð á vegum myndlistardeildar Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Verkefnið hefur hlotið nafnið Bakherbergið. Valinkunnir myndlistarmenn verða kallaðir til leiks í því augnamiði að leiða viðstadda að uppsprettum verka þeirra. Megináherslan hvílir þannig á aðdraganda, forsendum og tilurð verkanna fremur en endanlegri útfærslu þeirra. Hver listamaður lýsir á sinn eigin hátt í máli og myndum þeim þáttum sem haft hafa hvað afdrifaríkust áhrif á hugsun hans og myndheim. Hann opnar inn í bakherbergi hugans, kveikir ljós eða bendir á það ólýsanlega sem er stöðugur og botnlaus brunnur nýrra verka og samræðna. Nú er röðin komin að Erlu Þórarinsdóttur.

Bakherbergi Erlu er alþjóðlegt. Hún er fædd í Reykjavík 1955 og  alin upp á Norðurlöndum. Var við nám við Konstfackskólann í Stokkhólmi og tók eina önn við Gerrit Rietveld Akademíuna í Amsterdam. Erla útskrifaðist árið 1981 og bjó í New York frá 1984 -1985. Undanfarin ár hefur hún dvalið reglulega í Kína og á Indlandi. Erla mun sýna ljósmyndir  úr samtímanum, viðmið á mennsku og tíma.

Allir velkomnir!

Listaháskólinn með kynningu á svæðisþingi tónlistarskóla

tonsmida2-170110tonsmidatonleikar09-5

Föstudaginn 24. september, var haldið svæðisþing tónlistarskóla 2010 á höfuðborgarsvæðinu. Þar var boðið upp á áhugaverða dagskrá með framsögum og umræðum.

Meðal annars var kynning á tillögum að meistaranámi í hljóðfæra- og söngkennslu sem vinnuhópur skipaður af rektor Listaháskóla Íslands, um námsbraut á meistarastigi í hljóðfæra- og söngkennslu, skilaði fyrr á þessu ári.

Tilgangurinn með kynningunni var að vekja upp umræðu á meðal tónlistarkennara um framtíð hljóðfærakennaranáms og hvernig því verður best fyrir komið.

Nína Margrét Grímsdóttir, formaður vinnuhópsins kynnti tillögurnar og á eftir voru hópaumræður um þann farveg sem bíða tillagna vinnuhópsins.

Sjá nánari dagskrá: http://www.ki.is/pages/314/NewsID/2334

Reykjavíkurgötur á Vísindavöku

laekjargata-2010-end

Föstudaginn 24. september frá kl.17.00 - 22.00 var kynning á verkefninu Reykjavíkurgötur á vegum Listaháskóla Íslands á Vísindavöku Rannís í Listasafni Reykjavíkur.

Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra, en í fyrra komu um 3000 manns á þennan viðburð.

Nýútkomin bók,  Reykjavíkurgötur 2010: Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Sóleyjargata, var kynnt á vegum Listaháskólans á Vísindavöku í ár.

Reykjavíkurgötur er heiti nýrrar ritraðar hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskólans í ritstjórn Sigrúnar Birgisdóttur, lektors og fagstjóra í arkitektúr.  Undanfarin ár hafa nemendur í arkitektúr við Listaháskóla Íslands unnið að rannsóknum á áveðnum götum og borgarrýmum í miðbæ Reykjavíkur, undir handleiðslu Sigrúnar Birgisdóttur og Massimo Santanicchia arkitekts. Göturannsóknarverkefnin sem hér um ræðir leitast við að skilja þróun byggðar í Reykjavík. Til að tryggja varðveislu og miðlun þessarar þekkingar hefur Sigrún Birgisdóttir,  lektor og fagstjóra í arkitektúr, komið á fót nýrri ritröð um þetta efni undir heitinu Reykjavíkurgötur. Fyrsta bókin kom út s.l. vor og ber heitið Reykjavíkurgötur 2010: Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Sóleyjargata.

Þjóðhátíðarsjóður og skipulags-og byggingarsvið Reykjavíkurborgar styrktu fyrstu útgáfu ritraðarinnar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á http://www.rannis.is/visindavaka/forsida/

Bakherbergið - Margrét H. Blöndal

bakherbergid-margret-blondal

BAKHERBERGIÐ - HÁDEGISFYRIRLESTUR mán. 27. sept kl. 12.30

Margrét H Blöndal myndlistarmaður heldur hádegisfyrirlestur á vegum myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, stofu 024, mánudaginn 27. sept. kl. 12.30.

Þann 20. sept s.l. hófst kynningarröð á vegum myndlistardeildar Listaháskóla Íslands í Laugarnesi sem hefur hlotið nafnið Bakherbergið. Valinkunnir myndlistarmenn eru kallaðir til leiks í því augnamiði að leiða viðstadda að uppsprettum verka þeirra. Megináherslan hvílir þannig á aðdraganda, forsendum og tilurð verkanna fremur en endanlegri útfærslu þeirra. Hver listamaður lýsir á sinn eigin hátt í máli og myndum þeim þáttum sem haft hafa hvað afdrifaríkust áhrif á hugsun hans og myndheim. Hann opnar inn í bakherbergi hugans, kveikir ljós eða bendir á það ólýsanlega sem er stöðugur og botnlaus brunnur nýrra verka og samræðna. Þann 27. september er röðin komin að Margréti H Blöndal.

Margrét er fædd í Reykjavík árið 1970. Hún lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hélt síðan til Bandaríkjanna í Rutgers University þaðan sem hún útskrifaðist 1997. Margrét hefur sýnt víða bæði hér heima og erlendis síðan hún hélt sína fyrst einkasýningu í Nýlistasafninu 1994. Á síðustu árum hefur hún haldið einkasýningar á Ítalíu, Írlandi, í Chile, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Sviss og Austurríki. Hún hefur tekið þátt í samsýningum meðal annars í Póllandi og Kanada.  Margrét hefur kennt í Listaháskóla Íslands og þriggja ára til áttatíu og fjögurra ára nemendum í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Hún er nú nýkomin heim frá Basel þar sem hún dvaldi um eins árs skeið á vegum Laurenz_Haus Stiftung.