Styrktarsjóður Halldórs Hansen styður framúrskarandi tónlistarfólk

h-hansen-2010-2

Andri Björn Róbertson, bassabarítón og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, harmóníkuleikari

hlutu styrk úr styrktarsjóði Halldórs Hansen

en afhendingin fór fram miðvikudaginn 1. september.

Tveir ungir tónlistarmenn þau Andri Björn Róbertsson, bassabarítón og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, harmóníkuleikari hlutu miðvikudaginn 1. september, styrk úr styrktarsjóði Halldórs Hansens að upphæð 400.000. hvor.

Styrktarsjóður Halldórs Hansen starfar undir væng Listaháskólans og veitir árlega styrki til tónlistarnema sem hafa að mati sjóðsstjórnar náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Styrktarsjóður Halldórs Hansen var formlega stofnaður 2004 og er þetta í sjöunda sinn sem veitt eru verðlaun út sjóðnum.

Gert er ráð fyrir að styrkþegar hafi lokið háskólanámi á grunnstigi en Andri Björn lauk burtfaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík í vor og Helga Kristbjörg lauk BA-gráðu í harmóníkuleik frá Listaháskóla Íslands síðasta vor en hún er fyrsti nemandi til að ljúka gráðu af því tagi frá tónlistardeild Listaháskólans.

Boðið var til hátíðardagskrár af þessu tilefni þar sem tilkynnt var um verðlaunahafa sjóðsins 2010 og komu þau fram á samkomunni. Það var mikil stemning að hlusta á flutning þessara ungu tónlistarmanna en þau eiga væntanlega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni en bæði stefna þau á tónlistarnám erlendis í haust.

Um styrkþegana:

Andri Björn Róbertsson bassabarítón fæddist árið 1989 í Reykjavík og hóf tónlistarnám ungur að árum og hefur sungið í kór frá fimm ára aldri. Níu ára gamall byrjaði hann í kórastarfinu í Langholtskirkju og hefur sungið með kórunum þar hingað til; nú síðast með Kór og Kammerkór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar. Andri hóf söngnám sitt tíu ára gamall, hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur sem hefur verið kennari hans síðan. Hann lauk Grunnprófi árið 2005 frá Söngdeild Kórskóla Langholtskirkju, hóf þá nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi s.ll vor. Þar hefur Andri einnig notið leiðsagnar Kristins Arnar Kristinssonar og Iwonu Aspsar Jagla.

Andri hefur sótt ýmis námskeið hjá mörgum afar virtum kennurum og söngvurum, m.a. Galinu Pisarenko, Elisabeth Meyer-Topsoe, Alexander Schmalcz, Þóru Einarsdóttur, Kristni Sigmundssyni, Dennis O’Neill, José Carreras, Dalton Baldwin og Dame Kiri Te Kanawa. Hann sótti Solti Te Kanawa Accademia di bel canto á Ítalíu í boði Dame Kiri, þar sem einungis tólf efnilegir söngvarar hvaðanæva úr heiminum komust að.  Andri hefur tekið þátt í ýmsum uppfærslum Nemendaóperu Söngskólans í Reykjavík m.a. Töfraflautunni, sungið Fígaró í Brúðkaupi Fígarós, og nú síðast titilhlutverkið í óperusamsuðunni Don Djammstaff. Samhliða námi sínu í Söngskólanum í Reykjavík stundaði Andri  nám við Kvennaskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi þaðan vorið 2009. Hann hefur oft komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri m.a. á Jólasöngvum Kórs Langholtskirkju og í Jóhannesarpassíunni.  Andri mun hefja nám við Royal Academy of Music í London nú í haust.

Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir er fædd og uppalin á Ísafirði. Hún stundaði nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar nær óslitið frá 1995-2007 þar sem aðalnámsgrein hennar var harmonika. Fyrstu árin naut hún leiðsagnar Messíönu Marzellíusdóttur en árið 1999 tók Vadim Fjodorov við harmonikukennslunni og vorið 2003 lauk hún 6. stigi á hnappaharmoniku. Veturinn 2006-2007 var Hrólfur Vagnsson kennari hennar við skólann. Hún stundaði einnig píanónám um nokkurra ára skeið og lauk miðprófi. Haustið 2004 stundaði Helga tónlistarnám í Frakklandi við tónlistarskólann Centre National & International de Musique & d’Accordéon (la CNIMA) þar sem aðalkennarar hennar voru J. Mornet, Roman Jbanov og Domi Emorine. Helga Kristbjörg hefur komið fram á fjölda tónleika og við ótal önnur tækifæri og hefur einnig starfað sem harmonikukennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Haustið 2007 hóf Helga Kristbjörg nám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Tatu Kantomaa og síðar Vadims Fjodorov og lauk þaðan BA-gráðu s.l. vor.

2. september, 2010