
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur birt úttektarskýrslu erlendra sérfræðinga um Listaháskóla Íslands, Follow-up Report, Iceland Academy of the Arts, Expert Committee Report, June 2010. Með úttektinni er ráðuneytið að fylgja eftir viðamikilli úttekt sem gerð var á skólanum 2007 og var grunnur þess að skólinn fékk viðurkenningu sem háskóli á fræðasviðinu listir.
Nýja úttektin byggir á sjálfsmatsskýrslu skólans frá því í janúar 2010, og heimsóttu sérfræðingarnir skólann síðastliðið vor og áttu fundi og viðtöl við stjórnendur, kennara, starfsmenn og nemendur, auk þess sem þeir kynntu sér öll gögn um skólann og starfsemi hans.
Rektor Listaháskólans hefur lýst yfir mikilli ánægju með skýrslu sérfræðinganna og telur hana gagnast skólanum mjög vel í áframhaldandi starfi. Viðhorf sérfræðinganna gagnvart uppbyggingu skólans sé afar jákvætt á allan hátt og það liggi sem rauður þráður í greiningu þeirra að skólinn sé á réttri braut og að vel sé haldið utan um taumana, bæði faglega og í rekstri. Sérstaklega sé það ánægjulegt að sérfræðingarnir lýsi yfir ‘aðdáun sinni’ á því hversu miklu hefur verið áorkað á þeim aðeins tíu árum sem skólinn hefur starfað, og þar á meðal og ekki síst hversu vel skólanum hafi tekist að forma samhentan hóp kennara úr þeim ólíku listgreinum sem stundaðar eru í skólanum.
Skýrslan er nú þegar komin í umræðu innan skólans, bæði í stjórn, framkvæmdaráði og í fagráði. Að sögn rektors er mikilvægt að skólinn vinni vel úr því efni sem þarna kemur fram, bæði athugasemdum og ábendingum, en að hans er skýrslan ekki síst til uppörvunar í því mjög góða skólastarfi sem hér unnið.
Úttektarskýrslan í pdf - Follow-up Report, Iceland Academy of the Arts, Expert Committee Report, June 2010.