Fimm útskrifaðir nemendur Listaháskólans hljóta Leónardó starfsþjálfunarstyrki á þessu skólaári. Listaháskólinn sækir árlega um styrki til mannaskiptaverkefna til Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins. Einungis fyrirtæki eða stofnanir geta sótt í sjóðinn og töluverð samkeppni er um styrki.
Það er ánægjulegt fyrir skólann að hafa enn á ný hlotið verkefnisstyrk og geta með því móti stutt útskrifaða nemendur til að takast á við spennandi verkefni á evrópskum vinnumarkaði að loknu námi.
Leónardó verkefnið í ár nefnist Art and Design in Post-Crisis Environment og þau sem hlutu styrk eru:
Einar Ingi Sigmundsson útskrifaðist úr grafískri hönnun vorið 2009. Hann hlaut styrk uppá 5069 evrur til að starfa með Krads Arkitektum í Árósum í Danmörku. Krads er arkitektastofa í eigu ungra arkitekta og starfar bæði á Íslandi og í Danmörku.
Þorbjörn G. Kolbrúnarson útskrifaðist af tónsmíðabraut vorið 2010 og hlaut styrk uppá 3080 evrur til að starfa í sjö vikur hjá Lapland Studio í Finnlandi. Lapland stúdíó sérhæfir sig á sviði þrívíðrar hönnunar og mun Þorbjörn sjá um tónlistargerð fyrir tölvuleiki og aðra miðla á starfstíma sínum.
Anna Gunndís Guðmundsdóttir útskrifaðist sem leikari vorið 2010. Hún hlaut 5096 evrur í styrk til að starfa með SIGNA leikhópnum í Danmörku og mun taka þátt í sýningum þar og í Þýskalandi fram í maí á þessu ári. SIGNA leikfélagið leggur áherslu á frelsi leikarans til sjálfstæðrar persónusköpunar.
Þorgerður Edda Hall útskrifaðist með BMus gráðu á selló vorið 2010. Þorgerður Edda hlaut 5096 evrur í styrk til að starfa með Podiumfestivalen í Noregi í 16 vikur. Podiumfestivalen er klassísk kammermúsíkhátið þar sem alþjóðlegur hópur ungra framúrskarandi tónlistarmanna kemur fram. Hátíðin fer fram í Haugesund dagana 4.-7.mars n.k.
Ragnheiður Káradóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist vorið 2010. Hún hefur hlotið 4205 evrur í styrk til að starfa í 13 vikur hjá Slowlab stúdíónu í Amsterdam sem rekið er af vöruhönnuðinum Carolyn Strauss. Slowlab er þekkt fyrirtæki á sviði sjálfbærrar hönnunar og “slow design”.
Listaháskólinn óskar þessum fyrrum nemendum sínum til hamingju með styrkinn og velfarnaðar í sínu fagi.
Nánari upplýsingar um Leónardó styrki má finna á síðu skólans: http://lhi.is/althjodlegt-samstarf/leonardo-mannaskipti/






















