

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2011 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 23. febrúar.
Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Pantið áhrifin frá Móður jörð og var það unnið af Auði Ösp Guðmundsdóttur, Emblu Vigfúsdóttur og Katharinu Lötzsch frá Listaháskóla Íslands og Robert Peterssen frá Háskólanum í Gautaborg. Leiðbeinendur þeirra í verkefninu voru Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir. Óskum við þeim innilega til hamingju með framúrskarandi árangur!
Sex verkefni voru tilnefnd í ár en af þeim voru þrjú verkefni sem unnin eru af nýútskrifuðum nemendum hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands. Er það helmingur tilnefninga og verður þetta að teljast frábær árangur nemenda úr Listaháskólanum!
Um verðlaunin
Verðlaunin eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2010. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og eru því veitt nú í sextánda sinn. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson afhendir verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Sjóðnum hafa aldrei borist jafnmargar umsóknir og árið 2010 en samanlagt bárust 603 umsóknir um styrk til sumarvinnu við nýsköpun og rannsóknir. Ákveðið var að styrkja 255 verkefni en að verkefnunum komu um 350 námsmenn.
Stjórn sjóðsins valdi tuttugu og eitt verkefni til að fara í nánara mat um forsetaverðlaun Nýsköpunarsjóðs námsmanna en af þeim voru fimm unnin af nemum úr Listaháskólanum. Sex verkefni af þessum tuttugu og eina verkefni voru svo tilnefnd eins og fyrr segir til Nýsköpunarverðlaunanna.
Verðlaunaverkefnið - Pantið áhrifin frá Móður Jörð
Nemendur: Auður Ösp Guðmundsdóttir, vöruhönnun LHÍ, Katharina Lötzsch, vöruhönnun LHÍ, Embla Vigfúsdóttir, vöruhönnun LHÍ og Robert Petersen, Furniture Design, Götenburg University.
Leiðbeinendur: Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir.
Pantið áhrifin er hugmyndafræðilegur veitingastaður þar sem upplifun, fræðsla og umhverfisvitund fara saman. Sérstaða staðarins er hin óvænta framsetning á réttunum, sjálfbærni og færanleiki hans en þar verða réttir pantaðir eftir áhrifum þeirra á líkamann. Verkefnið verður unnið á eins náttúrumeðvitaðan hátt og mögulegt er og áhersla lögð á íslenska og heiðarlega framleiðslu. Hugmyndin kviknaði haustið 2009 í áfanga við Listaháskóla Íslands sem kallast Stefnumót hönnuða og bænda þar sem vöruhönnunarnemar og bændur unnu saman í hópum að nýsköpun og verðmætaaukningu íslensks landbúnaðar.
Hugmyndin að veitingastaðnum byggir á hugmyndafræði Eymundar Magnússonar bónda að Vallanesi en hann sérhæfir sig í framleiðslu lífrænna matjurta sem seldar eru undir vörumerkinu Móðir Jörð. Eymundur leggur metnað sinn í að fræða almenning um mikilvægi heilbrigðrar fæðu og áhrif hennar á líkama okkar ásamt því að stuðla að sjálfbærni og náttúruvernd. Staðbundin framleiðsla og vistvænt hráefni verða aðalsmerki veitingastaðarins. Staðurinn sjálfur er byggður úr timbri úr Hallormsstaðarskógi (10 km frá Vallanesi) og réttirnir búnir til úr íslensku hráefni, mestmegnis frá Vallanesi. Kappkostað var að nota eins nærtækan efnivið og völ var á og margar vettvangsferðir farnar í leit að möguleikum á hráefni og vinnslu. Staðurinn er sampakkanlegur og getur því ferðast milli landshorna eftir því hvernig vindar blása.
Hin verkefnin frá Listaháskólanum sem hlutu tilnefningu eru verkefnið MindGames: Hugþjálfunartölvuleikur og Vistland: Rannsókn á möguleikum sjálfbærni í íslenskum arkitektúr og húsagerð.
Dómnefnd Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2011
Sérstök dómnefnd valdi verkefnin sex sem tilnefnd eru. Í dómnefndinni áttu sæti: Jökull Viðar Gunnarsson, formaður (tilnefndur af Stúdentaráði Háskóla Íslands), Rósa Gunnarsdóttir (tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti), Heiða Kristín Helgadóttir (tilnefnd af Reykjavíkurborg), Davíð Lúðvíksson (tilnefndur af Samtökum iðnaðarins) og Katrín Valgeirsdóttir (tilnefnd af Rannsóknamiðstöð Íslands).