Mikil aðsókn í Listaháskólann

Listaháskólinn 2010 fanar

Listaháskóli Íslands hefur auglýst eftir umsóknum um nám í myndlistardeild, tónlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild. Frestur til að skila inn umsóknum rann út 25. mars.  Alls bárust 403 umsóknir um nám í  þessar þrjár deildir. Verið er skoða umsóknirnar og ganga úr skugga um að öll fylgigögn séu komin þ.a. umsóknirnar séu gildar.  Er þetta svipaður fjöldi umsókna og í fyrra. Aðeins er reiknað með að skólinn geti tekið við um fjórðungi þessa hóps.

Flestar eru umsóknir um nám í hönnunar- og arkitektúrdeild eða um 228. Umsóknir um nám í tónlistardeild eru 68 og 107 sóttu um í myndlistardeild. Að þessu sinni er ekki tekið inn í leiklistar- og dansdeild.

Til að sækja um nám við Listaháskólann þurfa nemendur ýmist að senda inn fjölbreytilegt efni sem endurspeglar þekkingu þeirra og kunnáttu í listgreininni og/eða taka próf og fara í stöðumat.  Sérstakar inntökunefndir meta umsóknir og eru þeir sem komast í úrtakshópa boðaðir í viðtöl.  Um hundrað nemendur komast svo væntanlega til náms í þessum greinum í skólanum.

Í Listaháskólanum er einnig boðið upp á meistaranám í listkennslu og tónsmíðum. Umsóknarfrestur um meistaranám í tónlistadeild og listkennsludeild er 13. maí og því liggja endanlegar umsóknartölur fyrir næsta skólaár því ekki fyrir enn.

Verkefni í listkennsludeild hljóta styrki

2011-listasmidja-natturunnar-n2011-listasmidja-natturunnar-kort

Nú á dögunum fengu þær Ása Hlín Svavarsdóttir og Helena Guttormsdóttir meistaranemar í listkennslu úthlutað styrk Menningarráðs Vesturlands úr menningarsjóði 2011 til að vinna að verkefnum sem þær hafa farið af stað með í námi sínu við listkennsludeild Listaháskóla Íslands.

Ása Hlín Svavarsdótitr fékk styrk að upphæð 1.000.000 - kr. til að setja upp sýninguna Drauminn. Draumurinn er leikgerð upp úr leikriti Williams Shakepsere Draumur á Jónsmessunótt og verður frumsýning á verkinu í kringum Jónsmessuna í sumar, í sveitarfélaginu Borgarbyggð. Draumurinn er meistaraverkefni Ásu Hlínar Svavarsdóttur við listkennsludeild  Listaháskóla Íslands og er leiðbeinandi hennar Vigdís Jakobsdóttir. Unnið er með samþættingu listgreina í þessari sýningu leik/dans/tónlistar. Einnig munu þátttakendur koma að leikmynd og búningagerð. Þátttakendur í sýningunni eru á aldrinum átta til tuttugu ára.

Helena Guttormasdóttir fékk styrk  að upphæð kr. 500.000 til  að vinna að verkefninu Listasmiðja náttúrunnar.  Grunnhugmyndina hefur hún unnið að í nokkur ár bæði í gegnum kennslu við Landbúnaðarháskóla Ísland og með námskeiðahaldi fyrir kennara, en hugmyndin hún var útvíkkuð og dýpkuð í hópvinnu í áfanganum um verkefnastjórnun í Listaháskólanum  þar sem listakonur  úr leiklist, myndlist, tónlist og grafískri hönnun unnu saman.

Hópurinn ætlar að þróa vistvæn farandnámskeið fyrir alla fjölskylduna þar sem náttúran og nærumhverfi á hverjum stað er uppspretta og efniviður sköpunar. Tilgangurinn er að gefa fólki  tækifæri til að vinna saman að skapandi listrænum verkefnum, tengja börn og fullorðna í gegnum listræna upplifun í náttúrunni og opna augu fólks fyrir möguleikum í nærumhverfi sínu. Á námskeiðunum verður meðal annars unnið með myndlist, hönnun, umhverfislistaverk, tónlist, skapandi skrif, ljóð, leiklist og gjörninga, búin til hljóðfæri og gerðar tilraunir með upptökur á náttúru­hljóðum, Hugmyndin er að námskeiðin verða haldin á landsbyggðinni, að mestu utan dyra en með athvarf t.d.í félagsheimilum. Þema hvers námskeiðs verður unnið út frá því sem umhverfið hefur upp á að bjóða.

Á bak við Listasmiðju náttúrunnar standa fimm konur; Ása Berglind Hjálmarsdóttir tónlistarkennari, Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og kennari, Helena Guttormsdóttir myndlista­r­maður og kennari við Landbúnaðarháskóla  Íslands, Hlín Ólafsdóttir grafískur hönnuður og Sesselja Guðmundsdóttir tónlistarkennari. Meðlimir hópsins hafa reynslu af kennslu á öllum skólastigum, leikstjórn, verkefnastjórnun, leiklist, myndlist, grafík, tónlist, gerð fjárhagsáætlana, kynningarmálum, auglýsingagerð og hugmyndavinnu. Einnig þekkingu á líf- og náttúrufræði, Waldorf-leikskólafræði, námskrám grunn- og framhaldsskóla, ljósmyndun, myndvinnslu, mynd­banda­gerð.

Nemendur í myndlistardeild Listaháskólans opna tvær sýningar

2011-myndlistarsyning-mars

Nemendur í áfanganum „Samfélagslegt rými“ í myndlistardeild Listaháskólans, undir handleiðslu Hlyns Hallssonar setja upp tvær sýningar nú í vikunni.

Sú fyrri opnar þriðjudaginn 29. mars klukkan 13.30 í Kubbnum í húsnæði LHÍ, Laugarnesvegi 91. Sýningin ber titilinn „Samfélagið í nærmynd“ og stendur til föstudagsins 1. apríl og er opin daglega frá kl. 11.00-15.00.

Seinni sýningin heitir „Víðsjá“ og opnar föstudaginn 1. apríl klukkan 19.00 í Kaffistofunni, nemendagallerí að Hverfisgötu 44, við hliðina á Kling og Bang. Sýningin verður opin frameftir kvöldi en aðeins þennan eina dag.

Þau sem sýna eru: Anton Vilhelm Ásgeirsson, Bjarki Þór Sólmundsson, Héðinn Finnsson, Katrín Dögg Valsdóttir, Leifur Ýmir Eyjólfsson, Ragnar Þórhallsson, Sigmann Þórðarson, Steingrímur Gauti Ingólfsson, Sunna Kristín Hannesdóttir, Viktor Pétur Hannesson og Hlynur Hallsson.

Auk þess eru nemendur með daglegar einkasýningar í Gallerý skítur og kanill sem er staðsett í Listaháskólanum í Laugarnesi. Nánari upplýsingar má finna á  facebook síða gallerísins: https://www.facebook.com/profile.php?id=100002175564346&sk=wall

Allir eru velkomnir á þessar sýningar.

Hönnuðurinn Arvind Gupta með fyrirlestur

2011-opni-arvind

Hönnuðurinn Arvind Gupta sem starfar hjá Ideo í Bandaríkjunum heldur fyrirlestur í Opna Listaháskólanum mánudaginn 28.mars kl. 12.00 í húsnæði Listaháskólans, Skipholti 1.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.

Monday 28.march at the OPEN ART ACADEMY at 12:00 the designer Arvind Gupta gives a lecture.

Arvind Gupta has spent the last 18 years finding opportunities to stitch together different fields to clarify and unlock new learnings and opportunities.

At IDEO, Arvind is a design and business lead in the Consumer Experience Design business unit, which designs brand-relevant consumer experiences that create growth and impact. Within this context, Arvind is blending the disciplines of design, business and marketing to grow IDEO’s offering  in user-centered marketing and design-driven strategy.  He is currently leveraging these tools and others to build IDEO’s business in Asia and learn from these rapidly changing, diverse markets and cultures to enrich our work globally. While at IDEO Arvind’s work has been displayed at SFMOMA, and published in journals ranging from Time to Rotman Journal. He has also been the recipient of numerous international design awards for design and innovation including several IDSA IDEA awards.

Arvind’s multi-disciplinary approach to design began while he was earning his undergraduate degree in Genetic Engineering, to which he applied Macroeconomic theory to his research. His Macroeconomic studies led him to the floor of the PCX options exchange in San Francisco where he provided liquidity as a local market maker in the Microsoft pit. During this time Arvind became an avid BASE jumper and helped to solve the problem of canopy collapse during an object strike which led to the development of bottom skin venting and an improved survival rate during object strikes. This experience of working to solve human needs by blending science and art led Arvind to complete a master’s degree in Industrial Design at SFSU, and ultimately to IDEO.

The lecture will be in english and is open to the public.

Sigurbjörn Bernharðsson með masterklassa í tónlistardeild

sigubjorn-2011

Fiðluleikarinn Sigurbjörn Bernharðsson í Pacifica strengjakvartettnum og fiðlukennari við Illinois háskólann í Champaign-Urbana í Bandaríkjunum, mun halda masterklassa í tónlistardeild Listaháskóla Íslands - Sölvhóli, þriðjudaginn 29.mars kl. 16.00 - 18.30.

Daginn eftir heldur hann tónleika í Salnum, Kópavogi, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara.

Sigurbjörn Bernharðsson er meðlimur Pacifica strengjakvartettsins sem hefur meðal annars unnið til Grammy verðlauna og gefið út fjölda diska.
http://www.pacificaquartet.com/

Allir velkomnir!