
Síðasta málstofa meistaranema listkennsludeildar LHÍ á þessu vori verður laugardaginn 30. apríl kl.16:30 í gömlu Rafstöðinni Elliðaárdal.
Hluti af meistaraverkinu er Rafmagnað dansverk og verður það sýnt kl: 16:30 og kl.18:00
Í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum 29.apríl var um 150 grunnskólanemendum boðið á sýningu á verkinu en markmið dagsins er að auka sýnileika dansins í samfélagi okkar, sýna fram á mikilvægi hans og hvetja stjórnvöld til þess að veita dansinum þann stuðning sem honum ber á öllum stigum skólakerfisins.
Þess má geta að höfundur verksins Irma Gunnarsdóttir er fyrsti meistaraneminn í dansi við listkennsludeild Listaháskóla Íslands.
Danshöfundur: Irma Gunnarsdóttir
Höfundur tónlistar: Kristinn Evertsson
Dansarar: Arna Sif Gunnarsdóttir, Arndís Benediktsdóttir,
Gerður Guðjónsdóttir og Una Björg Bjarnadóttir.
Lifandi tónlist: Kristinn Evertsson og Örn Eldjárn.
Kl.16:30 – 17:30 Sýning ásamt LHÍ málstofu.
Kl. 18:00 – 18:30 Opin sýning
Nánari upplýsingar veitir Kristín Valsdóttir Deildarforseti listkennsludeildar í síma: 696 0967



















